06.11.1985
Efri deild: 12. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 436 í B-deild Alþingistíðinda. (374)

108. mál, Jarðboranir hf.

Iðnrh. (Albert Guðmundsson):

Hæstvirtur forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um Jarðboranir hf., eins og það er kynnt hér í þskj. 118. Frv. gerir ráð fyrir sameiningu Gufuborunar ríkisins og Reykjavíkurborgar annars vegar og Jarðborana ríkisins hins vegar í eitt fyrirtæki, Jarðboranir hf.

Við sameininguna er farið að tillögu sérstakrar nefndar, skipaðri fulltrúum ríkisins og Reykjavíkurborgar, en sú nefnd skilaði áliti 24. jan. 1985.

Hlutafjáreign ríkisins og borgarinnar í hinu nýja fyrirtæki er jöfn, 68 millj. kr. Framlag ríkisins er hluti af eignum Jarðborana ríkisins, framlag borgarinnar helmingur gufuborsins Dofra og verulegt fjármagn. Nánar er fjallað um þetta í fylgiskjali nr. 2 með frv.

Um leið og hið nýja fyrirtæki verður stofnað yfirtekur ríkissjóður skuldir Jarðborana ríkisins. Þær eru aðallega erlend lán til kaupa á bornum Jötni árið 1976, nú að upphæð 121,5 millj. kr., og er upphæðin öll gjaldfallin og í vanskilum. Þarna á móti koma eignir frá Jarðborunum ríkisins og hlutafé frá Jarðborunum hf., eins og rakið er í athugasemdum við 2. gr. frv. Verður að telja þessi viðskipti hagstæð fyrir ríkissjóð.

Við stofnun hins nýja hlutafélags verður engin röskun á ráðningu fastráðinna starfsmanna Jarðborana ríkisins. Atvinnuöryggi þessa fólks er tryggt í sérstakri grein í frv.

Í frv. er leitast við að tryggja sem best hagsmuni annarra sveitarfélaga en Reykjavíkurborgar, en mörg sveitarfélög eiga veruleg viðskipti við Jarðboranir ríkisins. Um þetta er fjallað í 5. gr. frv., auk ákvæðis til bráðabirgða, en sameiginleg bókun iðnrh. og borgarstjórans í Reykjavík setja rammann um framkvæmd þessa ákvæðis.

Eignaskipti ríkissjóðs við Jarðboranir hf. eru sem hér segir: Inn koma eignir skv. sundurliðun á bls. 3 í frv. að upphæð 84,4 millj. og hlutafé í Jarðborunum hf., sbr. sundurliðun á bls. 9, 68 millj. kr. Samtals 142,4 millj. kr. Út fara skuldir Jarðborana ríkisins, 119,4 millj. kr., og mismunur er ríkissjóði í hag eða 33 millj. kr. Þarna á móti kemur höfuðstóll ríkisins í Jarðborunum ríkisins og Gufuborun. Af þessum samanburði er ljóst að hér er um hagstæð viðskipti að ræða.

Málið hefur tafist nokkuð frá því sem stofnsamningur gerir ráð fyrir eða frá 1. júní 1985, en sá tími hefur verið notaður til að tryggja frekari hagsmuni sveitarfélaga. Má þar benda á 3. og 4. gr. í sameiginlegri bókun iðnrh. og borgarstjórans í Reykjavík sem er fylgiskjal nr. 4 með frv.

Í skýrslu nefndar þeirrar er annast sameiningu fyrirtækjanna er gerð grein fyrir ástæðu þess að Reykjavíkurborg verður 50% eignaraðili að hinu sameiginlega fyrirtæki.

Í fyrsta lagi er Reykjavíkurborg nú þegar helmingsaðili að Gufuborun ríkisins og Reykjavíkurborgar og hefur samstarf um það fyrirtæki tekist mjög vel.

Í öðru lagi kaupir Reykjavíkurborg og veitustofnanir hennar, þ.e. hitaveita og vatnsveita, mjög mikla þjónustu frá borfyrirtækjunum. Af heildarumsvifum beggja fyrirtækjanna, Jarðborana ríkisins og Gufuborun ríkisins og Reykjavíkurborgar, er tæpur helmingur tekna árið 1984 vegna verka fyrir Hitaveitu Reykjavíkur og Vatnsveitu Reykjavíkur.

Í þriðja lagi er nauðsynlegt að halda í einu öflugu fyrirtæki þeirri þekkingu og verkkunnáttu sem fyrir er hjá borfyrirtækjunum. Til að tryggja að svo verði er æskilegt að Reykjavíkurborg eigi þar verulega aðild að.

Helstu viðskiptaaðilar jarðborunarfyrirtækjanna eru sveitarfélög og veitufyrirtæki þeirra. Eðlilegt er því að sveitarfélög í landinu geti í auknum mæli yfirtekið þessa starfsemi af ríkinu. Fyrirliggjandi samningur um helmingseignaraðild Reykjavíkurborgar að fyrirtækinu er því farsælt skref í þá átt. Í frv. er jafnframt tryggt að sveitarfélög eigi kauprétt að hlutabréfum ríkisins í hinu nýja félagi.

Í fylgiskjölum frv. er gerð grein fyrir fjárhagsuppgjöri milli samningsaðila. Benda ber á að fjárhagsatriði í lokasamningi milli aðila eru í nokkrum atriðum önnur en nefndin, sem fjallaði um sameininguna, lagði til. Er það niðurstaða beinna viðræðna fulltrúa iðnrn. og borgarinnar um skilmála sameiningarinnar sem fram fóru eftir að skýrsla nefndarinnar var lögð fram í janúar 1985. Felst munurinn aðallega í því að í lokasamningi aðila er nokkrum núverandi eignum haldið utan sameiningarinnar. Þá hafa tæki og áhöld fyrirtækjanna verið endurmetin sem stofnframlög.

Hlutafé félagsins verður því 136 millj. kr. skv. sameiningarsamningnum sem er nokkru lægri fjárhæð en sú sem er lögð til í skýrslu fyrrgreindrar nefndar. Vísast að öðru leyti til fylgiskjala um fjárhagslegt uppgjör og sérstaklega yfirlit Endurskoðunarmiðstöðvarinnar hf. - N. Manscher, eins og kemur fram á fskj. nr. 2.

Virðulegi forseti. Ég vil að lokum leggja til að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.