18.04.1986
Efri deild: 79. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4093 í B-deild Alþingistíðinda. (3755)
396. mál, framleiðsla og sala á búvörum
Landbrh. (Jón Helgason):
Hæstv. forseti. Hv. 1. þm. Reykv. beindi til mín þeirri spurningu af hverju sérstaklega væri þörf fyrir þessa lagasetningu um kartöflur og ekki annað. Eins og hv. þm. veit þá var frv. víðtækara, en það varð niðurstaðan í landbn. að gera þessa breytingu og vafalaust er það augljós ástæða að kartöflurnar eru umfangsmesta framleiðsluvaran hér sem um er að ræða og svona getur hagað til með, að bæði er um að ræða innlenda og erlenda framleiðslu á markaðnum samtímis. Hinu er ekki að neita að svo er einnig með fleiri vörur. En með sumar tegundir gróðurhúsaframleiðslu, sem koma á markaðinn síðari hluta vetrar, tómata og gúrkur, þá verður það til þess að lækka verðið en ekki hækka þegar innlenda framleiðslan kemur á markaðinn og þá er þessa ákvæðis vissulega ekki þörf.
Vegna ræðu hv. 8. þm. Reykv. vil ég aðeins ítreka það að það viðhorf að vera með verndaraðgerðir fyrir búvörur er ekki meira miðaldalegt en svo að það gildir enn í dag í flestum Evrópulöndum. Við verðum að sætta okkur við það ef við ættum að flytja okkar framleiðslu til þeirra landa.