18.04.1986
Efri deild: 79. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4097 í B-deild Alþingistíðinda. (3759)

422. mál, starfsmenn þjóðkirkju Íslands

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um starfsmenn þjóðkirkju Íslands. Frv. fjallar um starfsmenn þjóðkirkjunnar. Meginefni þess fjallar um embættisgengi, störf og starfshætti presta, prófasta og biskupa og nokkurra annarra starfsmanna þjóðkirkjunnar.

Frv. skiptist í fimm kafla. Í I. kafla er fjallað um prestaskipun og setningu í prestsembætti, reglur um embættisgengi, réttarstöðu þeirra og lögkjör. Í II. kafla er fjallað um aðra starfsmenn kirkjunnar og þjóðkirkjusafnaðar. Í III. kafla frv. er fjallað um prófasta. Frv. gerir ráð fyrir að prófastur verði virkari um eftirlit og umsjón með kirkjustarfi en nú er. Í IV. kafla frv. er fjallað um biskupa og biskupsdæmi íslensku kirkjunnar. Þar er gert ráð fyrir að biskupsdæmin á Íslandi verði þrjú, Reykjavíkurbiskupsdæmi, Skálholtsbiskupsdæmi og Hólabiskupsdæmi. Biskup Íslands situr í Reykjavík og fer með yfirstjórn sameiginlegra mála þjóðkirkjunnar. V. kaflinn fjallar um stjórnvaldsreglur, gildistöku og brottfellin lög.

Frv. þetta er að stofni til samið af svokallaðri kirkjulaganefnd er skipuð var til að endurskoða löggjöf er varðar þjóðkirkjuna.

Ýmsar stofnanir kirkjunnar, bæði kirkjuþing, kirkjuráð og prestastefna hafa fjallað um frv. og gert á því ýmsar breytingar frá upphaflegri gerð þess. Frv. kom síðan aftur til umfjöllunar í kirkjulaganefnd. Nefndin gerði ekki efnislegar breytingar á frv.

Lagaákvæði um starfsmenn þjóðkirkjunnar eru sundurleit og frá mismunandi tímum. Því er tímabært að setja um þetta efni ný lög. Við samningu þessa frv. hefur það verið haft að leiðarljósi að löggjöf um þetta efni yrði sem samfelldust. Frv. gerir ráð fyrir að gömul ákvæði, sem ekki eiga lengur við vegna breyttra tíma, verði felld úr gildi. Jafnframt eru ýmis nýmæli er miða að því að þjóðkirkjan svari sem best þeim kröfum sem til hennar eru gerðar.

Því er ekki að leyna að í frv. eru ákvæði sem ríkisstj. hefur ekki getað samþykkt óbreytt. Hér er einkum um að ræða ákvæði í 1. kafla um prestssetur, einkum ákvæði 6.-8. gr. Samkvæmt téðum greinum er gert ráð fyrir að skylt sé að leggja presti til bústað hvar sem hann býr á landinu. Einnig eru ákvæði um eignarréttarlega stöðu prestssetra sem nánar þarf að athuga hvort ríkisvaldið getur fallist á.

Hitt atriðið sem ekki er eining um er ákvæði IV. kafla um þrjú biskupsdæmi. Frv. var á sínum tíma sent Fjárlaga- og hagsýslustofnun þar sem reiknaður var út sá kostnaður sem kynni að leiða af samþykkt þess. Hér verður ekki frekar farið út í það en þm. eru þau gögn tiltæk ef þeir óska þess.

Kirkjuráð hefur eindregið óskað eftir því að frv. verði lagt fram óbreytt á þessu þingi til kynningar. Ég hef orðið við því enda þótt það njóti ekki stuðnings ríkisstj. í óbreyttri mynd. En ég tel mjög nauðsynlegt að um það sé fjallað á milli þinga og reynt að færa það í það form sem líklegt er að náist samstaða um á Alþingi að afgreiða málið. Ég vil jafnframt leggja áherslu á það að ég tel þörf á að setja heildarlöggjöf um starfsmenn þjóðkirkjunnar.

Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umr. og hv. menntmn.