18.04.1986
Efri deild: 79. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4100 í B-deild Alþingistíðinda. (3769)
205. mál, Seðlabanki Íslands
Samgrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Þetta frv. um Seðlabanka Íslands var flutt nokkuð snemma. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, byggist á tillögum bankamálanefndar sem var skipuð í júlímánuði 1982 en í skipunarbréfi þeirrar nefndar var henni falið að endurskoða allt bankakerfið, þar á meðal löggjöfina um Seðlabanka Íslands og hlutverk hans, með það að markmiði að mynda stærri og virkari heildir og einfalda bankakerfið innan ramma heilsteyptrar löggjafar um viðskiptabanka.
Bankamálanefndin skilaði tillögum sínum til ráðuneytisins í mars 1984 og fylgdu þeim sérálit tveggja nefndarmanna, Kjartans Jóhannssonar og Lúðvíks Jósepssonar.
Frá því að tillögurnar bárust ráðuneytinu hafa þær verið til athugunar og í meginatriðum hefur verið ákveðið að fylgja tillögum meiri hluta bankamálanefndar.
Upphaflega var ætlunin að seðlabankafrv. yrði lagt fram á síðasta þingi um líkt leyti og þingið tók til meðferðar frv. til l. um viðskiptabanka og sparisjóði. Slík málsmeðferð hefði verið mun æskilegri enda var nánast gert ráð fyrir því í viðskiptabanka- og sparisjóðsfrv. að breytingar yrðu samtímis gerðar á lögum um Seðlabanka og nægir í þessu sambandi að nefna tilhögun vaxtaákvarðana. Úr þessu gat því miður ekki orðið en þm. fengu hins vegar í hendur drög að frv. til l. um Seðlabanka Íslands sem trúnaðarmál í júnímánuði á s.l. ári.
Með því frv., sem hér liggur fyrir, eru lagðar til margvíslegar breytingar á gildandi lögum um Seðlabankann frá 1961. Meginhlutverk bankans, sem er að vinna að því að peningamagn í umferð og framboð lánsfjár sé hæfilegt miðað við það að verðlag haldist stöðugt og framleiðslugeta atvinnuveganna sé hagnýtt á sem fyllstan og hagkvæmastan hátt, verður hins vegar óbreytt.
Helstu breytingarnar eru þær að rekstur Seðlabankans er í auknum mæli bundinn við hefðbundin verkefni seðlabanka. Í öðru lagi er ákvæðum um stjórntæki bankans skipað með öðrum hætti en gert er í gildandi lögum miðað við að bindiskyldu innlánsstofnana gagnvart Seðlabanka verði fyrst og fremst beitt til þess að stuðla að jafnvægi á peningamarkaðnum. Seðlabankanum verði heimilt að setja innlánsstofnun reglur um lágmark og meðaltal lauss fjár. Almenn heimild Seðlabankans til að ákveða innláns- og útlánsvexti innlánsstofnana er felld niður. Reglur um lán ríkissjóðs úr Seðlabanka eru hertar. Afskipti Seðlabanka af stofnun nýrra útibúa hjá bönkum og sparisjóðum falla niður. Sett eru ákvæði um starfsemi og starfsheimildir bankaeftirlitsins. Bankastjórum og aðstoðarbankastjórum Seðlabankans er almennt bannað að sitja í stjórn annarra stofnana og atvinnufyrirtækja eða taka þátt í atvinnurekstri utan bankans og skv. frv. verða bankastjórar eigi ráðnir til lengri tíma en sex ára eftir gildistöku frv. Hagnaður Seðlabankans er skattlagður.
Með þeim breytingum, sem ég hef í örstuttu máli verið að lýsa og nánar hefur verið rætt um í fyrri deild, og þar sem svo langt er liðið frá því að ég mælti fyrir frv. í Nd. hygg ég að þm. almennt hafi kynnt sér meðferð þessa máls.
Þegar málið kom til afgreiðslu úr fjh.- og viðskn. Nd. voru samþykktar 10 brtt. frá meiri hl. fjh.- og viðskn. sem eru á þskj. 866. Því til viðbótar var flutt til 3. umr. brtt. um gildistöku laganna þannig að lögin taka gildi 1. nóv. á þessu ári ef þetta frv. verður að lögum.
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að skýra hér frá því að við afgreiðslu málsins varð sú yfirsjón við brtt. meiri hl. nefndarinnar að tvö orð féllu niður. Mér þykir því rétt að flytja þá brtt., sem nefndin fær til athugunar, við 8. gr. 1. málsl. 1. málsgr. að hann orðist svo:
„Þegar sérstaklega stendur á getur Seðlabankinn ákveðið með samþykki ráðh. að innlánsstofnanir skuli eiga fé á bundnum reikningi í bankanum er nemi tilteknu hlutfalli af heildarinnlánsfé hjá hverri stofnun eða af ráðstöfunarfé hennar.“
Þessi brtt. er óbreytt eins og nefndin í Nd. gekk frá henni en tvö orð féllu niður svo að ég taldi réttara að flytja upphaf málsgr. við 8. gr. frv.
Herra forseti. Mér er ljóst að þetta frv. kemur allt of seint til nefndar í þessari hv. þd. En hér er um mál að ræða sem er búið að liggja lengi fyrir þinginu. Ég tel brýna nauðsyn vera á því að afgreiða þetta frv. Ég treysti mjög vel hv. þd, til að taka á því þó að frv. hafi legið alllengi fyrir nefnd í Nd. og legg til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umræðu og hv. fjh.- og viðskn.