18.04.1986
Efri deild: 79. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4108 í B-deild Alþingistíðinda. (3776)

413. mál, þjóðarátak til byggingar þjóðarbókhlöðu

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti, aðeins örfá orð. Ég skrifaði undir nál. í þessu máli og gerði það án alls fyrirvara. En það má svo sem segjast að það hefði ekki skaðað þetta mál að láta það bíða lítið eitt og um þetta eru, hygg ég, nokkuð skiptar skoðanir í öllum þingflokkunum. Það hefði ekki skaðað málið að láta það bíða til haustsins og reyna að ná um það samstöðu. En mín niðurstaða varð sú, að vandlega athuguðu máli, að styðja þetta frv. því auðvitað er ekki vansalaust hvernig að þessu hefur verið staðið og hvernig að fjárveitingum hefur verið staðið til þjóðarbókhlöðu.

Málið snýst ekki um ágæti þess húss eða þeirrar starfsemi sem þar fer fram, heldur hefur sá ágreiningur fyrst og fremst snúist um það hvernig þetta mál hefur borið hér að. En ég hef svo sem enga nennu til að halda uppi málþófi um það. Þetta mál er komið fram og svo langt fram gengið að það mun hljóta samþykki. Ég styð það og greiði því atkvæði án nokkurs fyrirvara enda þótt ég hefði kosið að um það hefði auðnast að ná meiri samstöðu og meiri tími hefði verið gefinn til þess. En sem sagt, ég hef engan fyrirvara um stuðning minn við þetta mál.