18.04.1986
Efri deild: 79. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4109 í B-deild Alþingistíðinda. (3778)
413. mál, þjóðarátak til byggingar þjóðarbókhlöðu
Frsm. minni hl. (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):
Herra forseti. Ekki batnar nú málið við útskýringar hæstv. ráðh. Nú er komið á daginn að áform menntmrh. um þau viðurkenningarskjöl, sem hér hafa verið kallaðar syndakvittanir, eru þannig að ef menn fá ekki slíkar syndakvittanir sjálfkrafa þá geta menn keypt sér þær, rétt eins og menn gátu keypt sér syndaaflausn hér áður fyrr. Sem sagt, ef menn eiga ekki nóg til þess að fá þetta sjálfkrafa þá geta menn komið á einhverja skrifstofu og látið skrá sig og fengið það þannig. Mér sýnist þetta nokkurn veginn vera sama fyrirkomulagið og með skömmtunarseðlana illræmdu hjá Félagsmálastofnun, að ef þú átt ekki nóg þá þarftu að taka þig út úr hópnum og sækja um það sérstaklega að fá að taka þátt í þessu sem kallað er þjóðarátak og er vitaskuld ekkert þjóðarátak, heldur eignamannaátak.