18.04.1986
Efri deild: 80. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4112 í B-deild Alþingistíðinda. (3789)

413. mál, þjóðarátak til byggingar þjóðarbókhlöðu

Frsm. minni hl. (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):

Herra forseti. Ég hlýt að harma að forseti er fastur í forsetastól og hefur engan varaforseta í deildinni og hefur þess vegna ekki tök á því að bera það af sér að vera orðinn innanborðs í Kvennalistanum og þar að auki kona samkvæmt málflutningi síðasta ræðumanns. Hann getur ekki borið af sér sakir. En konur eru hjartagóðar og ég tek það að mér fyrir hæstv. forseta að benda hv. þingdeildarmönnum á að hann er einnig meðflm. að þessari till.

Það þjónar sennilega litlum tilgangi að vera að halda uppi tveggja manna tali úr ræðustól. Þetta er ekki spurning um hvar Kvennalistinn setur mörk um hvað eru eignamenn og hvað ekki, heldur hvernig frv. ákvarðar það. Það er skýrt ákveðið í frv. sjálfu.

Orðið „eignamaður“ þýðir einfaldlega sá sem á einhverja eign - og hvað er það mikil eign? spyr hv. þm. Það er eign upp á 1,6 millj. metin sem eignarskattsstofn.

Hvað mína persónulegu hagi varðar tók ég það nú fram að mér væri ekki tamt að ræða þá hér úr ræðustól, en ég ræddi þetta vegna þess að mér hefur oft reynst það vel í kennslu að taka dæmi til skýringa. Ég var þess vegna aðeins að reyna að útskýra fyrir hv. þm. á aðgengilegan hátt, þannig að auðskiljanlegt væri, hvað átt væri við og tók dæmi af mínum eigin persónulegu högum.