06.11.1985
Efri deild: 12. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 441 í B-deild Alþingistíðinda. (380)

108. mál, Jarðboranir hf.

Iðnrh. (Albert Guðmundsson):

Virðulegi forseti. Ég þakka þær málefnalegu umræður sem fram hafa farið um þetta frv. til laga um Jarðboranir hf. Það eru ekki margar spurningar sem gefa mér tilefni til að standa hér upp aftur. Ein spurning er nóg til þess. En áður en ég kem að henni vil ég fara yfir punkta sem komu fram hjá þeim sem tekið hafa til máls.

Hjá hv. 4. þm. Vesturl. kom fram að vanalega þegar fyrirtæki væri breytt og stofnað væri hlutafélag væri það til þess að starfsmenn fengju þar eignaraðild. Ég held að það sé alveg tómt mál að tala um að fyrirtæki svo sérhæft sem Jarðboranir eru og það dýrt, bæði í rekstri og ég tala nú ekki um fjárfestingu, geti nokkurn tíma hér á landi orðið hlutafélag einstaklinga. Ég held að það sé alveg útilokað þar sem við tölum í hundruðum milljóna en ekki í nokkrum milljónum eða milljóna tugum eins og þegar tiltölulega stór innlend fyrirtæki eru sett á laggirnar. Þannig er ekkert óeðlilegt að stærsti notandinn og ríkið séu saman um slíkt fyrirtæki. (KSG: Hlutabréf Flugleiða voru boðin í einu lagi, stór upphæð.) Þar erum við að tala um félag sem er með heildarhlutafé eftir jöfnunarbréf, sem hafa þó ekki verið gefin út lengi, af þeirri stærð að einstaklingar ráða við það og því er dreift niður á stóran hóp manna líka. Þetta kemur vel inn í það sem ég sagði í upphafi.

En ég held líka að um annað hafi ekki verið að ræða vegna stærðar þeirra verkefna sem fram undan eru hjá höfuðborginni. Reykjavíkurborg keypti sjálf tiltölulega nýlega jarðbora. Ég efast því um að verkefni hefðu verið næg fyrir ríkisfyrirtækið eða ríkisborana.

Á þessu frv. skilst mér að hafi orðið breyting frá því að það kom fyrst fram í flokkunum sem eiga aðild að ríkisstjórn í þá veru að samkvæmt ábendingu eiga sveitarfélögin öll aðgang að því að eignast hlut ríkissjóðs í fyrirtækinu. Það er opnara en var í upphaflegum drögum að frv.

Hvað gildistökuna, sem um er getið í frv., varðar er hún ákveðin 1. júní. Ég tek undir að slíkt er að sumu leyti óeðlilegt, en ekki þegar hugsað er um að það er sá dagur sem hlutafélagið átti að taka til starfa. Hið nýja félag átti þá að taka yfir allt sem þurfti að meta og verðleggja samkvæmt þeim vísitölum sem þá voru í gildi og því mati sem var í gildi á þeim degi. Því er haldið til haga og dagsetningunni einnig til þess að endurmat verði léttara. Það verður léttara frá þeim degi til þess dags sem fyrirtækið tekur vonandi til starfa.

Virðulegur 8. þm. Reykv. spyr vegna þess að það er enginn kaupandi að því. (Gripið fram í: Það er hvers vegna fyrirtækið ekki var selt. Ég geri ráð fyrir að það hafi verið einvörðungu er hægt að leita tilboða.) Leita tilboða í fyrirtækið? Ég veit ekki betur en að það hafi verið margsagt, bæði af mér og iðnrh. og ríkisstjórnin hefur samþykkt það, að öll fyrirtæki ríkisins eru til sölu. Ef það kemur kaupandi er það athugað. En ég veit að hv. 8. þm. Reykv. hlýtur að vera mér sammála um að stærð fyrirtækisins gerir að verkum að það er miklu þrengri kaupendamarkaður hér á landi en ella væri, ef við værum í öðruvísi landi. Það er líka eignarréttur ríkisins á starfinu sjálfu sem þessi fyrirtæki eiga að láta af hendi. Síðan kemur markaðurinn sem er líka í höndum hins opinbera, sveitarfélaga eða ríkisins. Þannig er hvergi grundvöllur fyrir þessa starfsemi nema á vegum hins opinbera. Ég held að það verði afskaplega erfitt að finna aðila sem vildu fjárfesta í svo dýrum tækjum og starfa á þeim starfsvettvangi sem hv. 8. þm. Reykv. gat um, á útboðsmarkaðnum. Þetta held ég að sé það eina svar sem ég get gefið.

Menn hafa talað hér um draugagang. Ég vona að hann sé horfinn úr frv. Ef ekki, reikna ég með því að honum verði þá útrýmt í nefnd.

Ég vil taka undir það með hv. 5. þm. Norðurl. e. að það er alls ekki geðfellt að veita undanþágur undan sköttum og öðrum opinberum gjöldum, en hérna er um opinber fyrirtæki að ræða. Þetta er spurningin um „inn og út“. Ég vona að það sé næg skýring. En ég verð að segja alveg eins og er að þessar undanþágur og eyrnamerking á opinberum gjöldum eru lítt geðþekkar.

Ég gaf áðan skýringu á bakdagsetningunni sem ég vona að sé líka nægjanleg.

Hv. 6. landsk. þm. talaði um forgang Reykvíkinga og talar af reynslu sem ég veit að er rétt. En ég veit ekki hvort það er stærð verkefna eða hvort það er eignaraðild Reykjavíkurborgar að fyrirtækinu sem gerir það að verkum að Reykjavíkurborg hefur haft forgang eða þá hvort Reykjavík hefur verið að vinna að verkefnum þegar aðrir aðilar hafa þurft á verkfærunum að halda. Ég hef ekki trú á því að Reykjavíkurborg geti hlaupið inn í verk annarra, ef vélarnar eru uppteknar einhvers staðar, og þær verði teknar úr verki til að sinna Reykjavíkurborg.

Hv. 5. þm. Vesturl. ræddi um 6. gr. Ég verð að sjálfsögðu að svara því þannig að ég get ekki ímyndað mér annað en að Jarðboranir ríkisins hf. standi við þau lög sem samþykkt eru um félagið. 6. gr. er einmitt til þess að tryggja að starfsfólkið missi ekki atvinnu við breytinguna á rekstrarforminu.

Að öðru leyti vona ég að allar upplýsingar komi fram og verði ræddar í nefnd og veit ég að fjh.- og viðskn. gerir sitt besta til að upplýsa málið sem best.