18.04.1986
Neðri deild: 86. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4115 í B-deild Alþingistíðinda. (3806)

73. mál, varnir gegn mengun sjávar

Frsm. meiri hl. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Á þskj. 914 er nál. frá meiri hl. samgn. Þar kemur fram að á fundi nefndarinnar hafi komið Ragnhildur Hjaltadóttir lögfræðingur í samgrn., Magnús Jóhannsson siglingamálastjóri, Gunnar Ágústsson deildarstjóri mengunardeildar Siglingamálastofnunar og Ólafur Pétursson forstöðumaður mengunarvarnadeildar Hollustuverndar ríkisins.

Það var fjallað nokkuð mikið um þetta frv. og það kom fram hjá nefndinni og raunar gestum hennar að frv. þetta skaraðist við önnur lög sem í gildi eru, t.d. lög um Hollustuvernd ríkisins. Tók Ólafur Pétursson sérstaklega fram að það þyrfti að hafa skilin gleggri þarna á milli. Nefndarmenn voru sammála um að æskilegt væri að lögin yrðu endurskoðuð innan þriggja ára þegar reynsla væri komin á hvernig samskipti þeirra stofnana, sem fara með mengunarmál, hefðu tekist.

Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon skrifar undir nál. með fyrirvara en hv. þm. Kristín Halldórsdóttir skilaði séráliti. Hinir nefndarmennirnir, að meðtöldum hv. þm. Steingrími Sigfússyni, leggja til að frv. verði nú samþykkt með brtt. sem eru á þskj. 915. Það er í fyrsta lagi við 21. gr.:

„2. málsl. orðist svo:

Siglingamálastofnun ríkisins leitar aðstoðar Landhelgisgæslu Íslands, hafnaryfirvalda, Hollustuverndar ríkisins, Geislavarna ríkisins, Náttúruverndarráðs og annarra opinberra aðila eftir því sem þörf krefur.“

Önnur brtt. er við 33. gr.: „2. málsgr. orðist svo:

Hámark dagsekta skal ákveðið í reglugerð og renna þær í sjóð samkvæmt 32. gr."

Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessi orð fleiri en endurtek það að sex af sjö nefndarmönnum leggja til að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem ég hef lýst.