18.04.1986
Neðri deild: 86. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4118 í B-deild Alþingistíðinda. (3808)

73. mál, varnir gegn mengun sjávar

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Ég hef skrifað undir nál. meiri hl., þar sem lagt er til að frv. þetta verði samþykkt með breytingum, með fyrirvara og mun nú gera stuttlega grein fyrir þeim helstu:

Í fyrsta lagi er um að ræða almennan fyrirvara hvað varðar stjórnskipulega tilhögun umhverfismála á Íslandi. Það er mikið mein, eins og við höfum oft rætt hér á Alþingi, að umhverfismál og meðferð þeirra er dreifð milli hinna ýmsu ráðuneyta. Hér kemur upp eitt dæmigert tilvik þar sem verkefni mismunandi stofnana og mismunandi ráðuneyta skarast að verulegu leyti í þessum málaflokki. Það vekur athygli á því einu sinni sem oftar að það er vægast sagt óheppilegt að jafnmikilvægur málaflokkur og umhverfismál skuli dreifast svoleiðis um stjórnkerfið.

Þar af leiðandi er ég með fyrirvara á um það að stuðningur minn við þetta frv. hér á þessari stundu er eingöngu bundinn því ástandi sem við búum við og felur ekki í sér almennan stuðning við þá skiptingu málaflokksins milli ráðuneyta sem raun ber vitni. Ég hefði talið eðlilegt að setja jafnvel inn skýr ákvæði um tímabundinn gildistíma þessara laga og að nauðsynlegt væri að vinna að heildarendurskoðun þessa málaflokks samtímis.

En ég er ekki sammála hv. síðasta ræðumanni hvað það varðar að þetta tiltekna mál lögfesti þessa skipan mála með eitthvað öðrum hætti en yfirleitt þegar fjallað er um umhverfismál. Ég lít svo á að hér sé eingöngu um afmarkaðan þátt málsins að ræða og ítreka fyrirvara minn um stuðning við þessa tilhögun í lengd.

Í öðru lagi er fyrirvarinn bundinn því hvernig verksvið Siglingamálastofnunar og Hollustuverndar hljóta óhjákvæmilega að skarast í þessum málaflokki vegna þessa frv. En það er sú skörun verkefna sem viðgengst í reynd. Hér er fyrst og fremst verið að lögbinda hana með nokkuð ákveðnari hætti en verið hefur. Það mætti að sjálfsögðu hugsa sér að það væri skýrar gert en þetta frv. og lög um Hollustuvernd gera. En þessi hefur orðið niðurstaðan og út af fyrir sig held ég að hægt sé að una því og fá reynslu á það hvernig þessi verkaskipting gefst þó að ég geti fúslega viðurkennt að ég hef efasemdir um að nógu skýrt sé á kveðið í þessu frv.

Í þriðja lagi, herra forseti, hef ég nokkurn fyrirvara á um það, eins og jafnan í slíkum tilfellum, þegar í frv. eða lögum á að fela einum fagráðherra víðtækt vald til útgáfu reglugerða og afsala honum þar með að verulegu leyti yfirstjórn þeirra mála sem gjarnan annars er bundin í lögum.

Ég hef til gamans, herra forseti, farið yfir það í fljótheitum hversu oft setningar eins og "Samgrh. skal...“, "Samgrh. er heimilt...“, "Samgrh. má...“ koma fyrir í þessum lögum. Það er a.m.k. einum fjórtán sinnum. Greinar frv. eru nú ekki nema rúmlega 30, þannig að þetta kemur ansi víða fyrir. Ég held að rétt sé að við rennum aðeins yfir það, herra forseti.

Í 4. gr. segir í upphafi 3. málsgr.: "Samgrh. er heimilt...“ Og í næstu málsgr.: "Samgrh. er heimilt að setja reglur“. Í 6. gr. segir: "Samgrh. er heimilt að setja reglur um flokkun fljótandi efna“ o.s.frv. Í 7. gr. segir: "Samgrh. er heimilt að setja reglur um meðferð og losun sorps“ o.s.frv. Í 8. gr. segir: "Samgrh. er heimilt að setja reglur um losun á skolpi í sjó“ o.s.frv. Í 10. gr. segir: "Samgrh. er heimilt að setja frekari reglur um söfnun og eyðingu úrgangsolíu.“ Og í næstu málsgr.: "Samgrh. skal setja nánari reglur um móttöku olíuúrgangs“ o.s.frv. Í 12. gr. segir: "Samgrh. er heimilt að setja reglur um móttökustöð fyrir annan úrgang.“ Í 19. gr. segir: "Samgrh. getur krafist þess“ o.s.frv. Í 22. gr. segir: "Samgrh. er heimilt að fenginni umsögn Siglingamálastofnunar“ o.s.frv. Í 23. gr. segir: "Samgrh. skal að höfðu samráði“ o.s.frv. og: "Samgrh. er heimilt að höfðu samráði“ o.s.frv. Í 29. gr. segir: "Samgrh. er heimilt að setja nánari reglur um framkvæmd sektargerða samkvæmt þessari grein.“ Í 32. gr. segir: „Sektir skv. lögum þessum renna í sjóð sem verja skal til mengunarvarna á sjó eftir því sem nánar segir í reglugerð er samgrh. setur. Í 33. gr. segir: „Dagsektir þessar skulu ákveðnar af samgrh. og renna í sjóð þann sem getið er í 32. gr." Þetta er 15. skiptið, sem samgrh. er með þessum hætti falið hitt og þetta í þessu frv.

Ég hafði ákveðnar athugasemdir við það að meira að segja sektarákvæði og upphæðir sekta væri ráðh. falið að setja með þessum hætti og ráðstafa. Niðurstaðan hefur orðið sú að meiri hl. samgn. Nd. flytur ákveðna brtt. til móts við þetta sjónarmið sem kveður þó a.m.k. á um það að sektarákvæðin skuli ákveðin í reglugerð og auglýst þannig og birt í Stjórnartíðindum mönnum til glöggvunar.

Herra forseti. Ég les þetta ekki upp vegna þess að ég hafi sérstakan ímugust á hæstv. núv. samgrh. og treysti honum síður til að fara með málefni en öðrum hæstv. ráðh. En ég vildi vekja athygli á þessu vegna þess að stundum eru menn að ræða um að ekki sé heppilegt að lengja arm laganna með þessum hætti allt of langt út til hinna einstöku stofnana og út í hin einstöku fagráðuneyti. Það er eins og mig minni að einhvern tíma hafi hæstv. núv. samgrh. einmitt gerst talsmaður þeirra sjónarmiða.

Hæstv. sjútvrh. hefur stundum mátt þola skammir fyrir það að verið væri að afsala honum miklu valdi í hendur með kvótalögum eða ýmsum öðrum hætti. En nú er það sem sagt hæstv. samgrh. sem fær þetta vald og skákar nú, held ég, hæstv. sjútvrh. í flestum greinum því að svona myndarlega hef ég ekki séð fjallað um hlut eins ráðherra í stuttu frv. fyrr. En sæll veri hæstv. samgrh. af þessu hlutverki sínu. Hef ég ekki fleiri orð um það.

Það er út af fyrir sig brýnt að koma mörgum þáttum þeirra mála, sem fjallað er um í frv., í betra horf en nú er, herra forseti. Ég vil sérstaklega gera að umtalsefni einn þátt þessara mengunarvarna, sem tengjast vörnum gegn mengun sjávar, og það er eftirlit í þessum tilfellum. Ég hef því miður grun um að það sé ekki alltaf sem skyldi. Reyndar staðfesta yfirmenn Siglingamálastofnunar að það sé miklum vandkvæðum bundið að koma við eftirliti, eins og þó væri mjög æskilegt og nauðsynlegt í þessum tilfellum. Ég vil vekja sérstaklega athygli á þessu og hvetja hæstv. samgrh. og aðra til að leita leiða til að efla eftirlit og tryggja betur en nú er og verið hefur undanfarið framkvæmd þessara ákvæða sem tryggja eiga varnir gegn mengun sjávar.

Í fjölmiðlum var nýlega brugðið upp ófagurri mynd af einum firði austanlands þar sem olíuflekkir flutu. Í viðtölum við heimamenn kom einmitt fram að til væru þeir aðilar sem ekki gerðu allt of mikið með lög og reglur í þessum efnum, hvort sem það væru lög eða reglur einstakra aðila. Það er auðvitað mjög slæmt, herra forseti, ef þessu er svo varið. Þess vegna hefði verið æskilegt, að mínu mati, að reyna að bæta hér verulega úr framkvæmdinni og til þess hefði jafnvel verið ástæða að koma því með einhverju móti betur inn í lögin en raun ber vitni.

Ég vil einnig vekja á því athygli að hér er nú lögfest það hlutverk Siglingamálastofnunar að mæla mengunarefni í sjó og þar með talin t.a.m. geislavirk mengunarefni. Ég fagna því og hvet til þess að þessum þætti verði sinnt. Þó að mörgum hætti til að álykta sem svo að vegna þess að við erum eyja úti í miðju hafi sé okkur ekki veruleg hætta búin af þessum efnum, þá er hér á ferðinni stórfellt og vaxandi alþjóðlegt vandamál sem getur haft verulegar hættur í för með sér, einnig fyrir okkur. Ég fagna því að þetta ákvæði er þarna og hvet til þess að því verði sinnt.

Þær brtt. tvær, sem meiri hl. flytur, eru að mínu mati báðar til bóta og ég styð þær. Með þeim fyrirvörum, sem ég hef nú gert grein fyrir, mun ég styðja þetta frv., herra forseti.