18.04.1986
Neðri deild: 86. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4123 í B-deild Alþingistíðinda. (3814)
399. mál, almannatryggingar
Frsm. (Ólafur G. Einarsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir áliti heilbr.- og trn. um frv. til laga um breytingu á almannatryggingalögum. Nál. er á þskj. 930. Nefndin mælir einróma með samþykkt frv. eins og það er komið frá hv. Ed. Undir þetta álit rita auk mín Guðmundur Bjarnason, Guðrún Agnarsdóttir, Geir H. Haarde, Kjartan Jóhannsson og Guðrún Helgadóttir, en fjarverandi afgreiðslu málsins var Friðrik Sophusson.