18.04.1986
Neðri deild: 86. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4129 í B-deild Alþingistíðinda. (3820)
285. mál, lögverndun á starfsheiti kennara og skólastjóra
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Ég mun ekki flytja langa ræðu við þessa umræðu um 285. mál þingsins og hefði kannske getað sparað mér að koma í ræðustól eftir ræðu hv. 4. þm. Reykv. sem rétt í þessu lauk máli sínu.
Ástæða þess að ég kem hér upp er sú að fyrir nokkru fluttum við till. til þál. nokkrir þm., auk mín hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson, Karl Steinar Guðnason, Stefán Benediktsson og Páll Pétursson, og í fjarveru minni hafði hv. 7. þm. Reykv. Guðmundur J. Guðmundsson framsögu fyrir málinu, en það fjallar um að fela ríkisstj. að kanna áhrif lögbundinna forréttinda, m.a. einkaréttar, til tiltekinna starfa eða atvinnurekstrar. Þetta mál fór til hv. allshn. Sþ. og eins og fram kom í máli hv. síðasta ræðumanns hefur nefndin nú þegar afgreitt tillöguna og vonast ég þess vegna til að hún geti hlotið samþykki á yfirstandandi þingi sem mun þýða að hæstv. ríkisstj. mun skylt að láta þá könnun, sem þar er fyrir lagt, fara fram.
Ástæður fyrir þessari till. okkar fimmmenninganna koma m.a. fram í grg., en þar er bent á að iðnþing Íslendinga hafi á s.l. ári ályktað sérstaklega um þetta mál á þann veg að tímabært væri að meta hvort taka skyldi ákvæði iðnaðarlaga til gagngerðrar endurskoðunar með hliðsjón af þróun þessara mála í nágrannalöndunum, einkum í Noregi. Þar munu menn að mestu hafa horfið frá lögbundnum einkarétti einstakra starfsstétta í iðnaði. Frá því er greint í grg. með þáltill. að Landssamband iðnaðarmanna hafi skipað nefnd til að vinna að þessu máli og er henni ætlað að skila áliti á þessu ári.
Þá er jafnframt á það minnst í nál. með þáltill. okkar að í skýrslu starfshóps, sem starfaði á vegum hæstv. félmrh. undir stjórn Ingvars Ásmundssonar, skólastjóra Iðnskólans, kom fram að mikil áhersla er lögð á það að ekki verði um lögbundnar hömlur á atvinnustarfsemi að ræða, enda sé þróunin í þeim löndum þar sem hagvöxtur er mestur í þveröfuga átt, þ.e. að taka tillit til reynslu manna og leggja meira upp úr símenntun en að taka fyrst og fremst tillit til prófs úr einum ákveðnum skóla eða ákveðins prófs í ákveðnum greinum og binda það síðan niður að aðeins menn með slík próf séu til þess hæfir að gegna ákveðnum störfum í þjóðfélaginu. Mér er ljóst að svo kann að vera um ýmis störf að nauðsyn sé að tryggja gagngert að menn hafi ákveðin próf, hafi farið í gegnum ákveðið nám. T.d. má benda á læknisstarf. Þar hljóta menn að þurfa að hafa farið í gegnum ákveðið nám, ekki síst vegna þess að þeir sem eru neytendur lækna koma oft til þeirra í þannig ástandi að þeir geta ekki gert sér neina grein fyrir því til hverra þeir eru að sækja. Menn sem hafa orðið fyrir slysum koma jafnvel meðvitundarlausir og verða að fá að treysta því að þeir gangi til manna sem hafa tilskilin próf og tilskilda reynslu.
Í sjálfu sér ætti að nægja að nám í flestum greinum veitti forgang samkvæmt eðli sínu. Ég tek skýrt fram að ég er ekki eingöngu að tala um kennarastéttina í þessu sambandi. Þetta á við um fjölmargar aðrar stéttir, ekki síst t.d. um lögfræðinga, en sá sem hér stendur í ræðustóli er einmitt lögfræðingur. Ég tel vera ákaflega vafasamt að binda málflutningsréttindi manna við lögfræðipróf þótt auðvitað beri að gera mikinn mun á því hvort um það er að ræða að menn kalli sig lögfræðinga eða ekki. Allir vita að hér á landi hefur til skamms tíma tíðkast að menn, sem ekki hafa lokið lögfræðiprófi, hafa fengið að reka mál fyrir dómi einmitt vegna þess að það hefur verið skortur á lögfræðingum, en um leið og þeim fjölgaði tóku þeir auðvitað yfir þennan „praxis“. Það er ekki þar með sagt að það þurfi að hafa byggst á lögbundnum forréttindum þessarar stéttar.
Þetta er aðeins dæmi um eina stétt og það sama má segja um margar aðrar. Kannske á þetta einkum og sér í lagi við þar sem um er að ræða iðn, eins og t.d. iðnmenntun sem veitir mönnum forréttindi til starfa. Auðvitað ætti að nægja að menn hafi einkaleyfi á að kalla sig þeim nöfnum sem prófin gefa þeim, en þyrftu ekki auk þess að njóta lögmæltra forréttinda og einokunar til að fá að starfa á sínu sviði.
Þetta er sagt vegna þess að nú á dögum þykir það vera sjálfsagt víða um heim að menn öðlist starfsreynslu, þekkingu og jafnvel nám í sínum störfum með símenntun sem á sér stað á degi hverjum, mánuði hverjum og ári hverju. Sú losun á hömlum sem hefur átt sér stað víða í nágrannalöndunum er auðvitað gerð til að ná fram betri lífskjörum og hefur oftast verið rökstudd með þeim hætti.
Ég óttast að með lögbindingu á borð við þá sem við erum að gera núna, þar sem er verið að veita ákveðinni stétt einhliða rétt, án þess að nokkrar skyldur komi í staðinn samkv. lögunum, séum við að opna dyrnar fyrir því að enn fleiri stéttir fylgi á eftir. Hv. síðasti ræðumaður minntist í því sambandi á hugmyndir sem uppi eru í fullri alvöru um að aðeins þeir er hafa lokið búfræðinámi geti stundað búskap á Íslandi. Sjá þá allir hvert stefnir í málefnum þessarar þjóðar.
Ég vil minna á að meðal okkar hv. þm. eru menn sem hafa staðið sig ágætlega sem kennarar þótt þeir hafi ekki lokið tilskildum prófum. Ég átti ekki við þá sem hafa próf, eins og hv. skrifari deildarinnar. Ég á við menn sem hafa ekki lokið prófum en hafa staðið sig mjög vel. Hér situr í salnum hv. þm. Geir Gunnarsson. Hann kom hv. þm. Kjartani Jóhannssyni til manns með því að vera kennari hans í Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Þetta gat hv. þm. Geir Gunnarsson án þess að hafa til þess tilskilin réttindi. Nú kann að vera að einhver sé mér ekki sammála um að honum hafi tekist jafnvel og mér finnst, en minn dómur er sá að hv. þm. Geir Gunnarssyni hafi tekist ákaflega vel upp þó að ég viti að það sé umdeilt. (ÓÞÞ: Er þá miðað við upplag?)
Annar hv. þm. er Ragnar Arnalds lögfræðingur frá Mánaþúfu í Varmahlíð. Hv, þm. Ragnar Arnalds, fyrrv. menntmrh., var skólastjóri í Varmahlíð í Skagafirði og ég hef ekki heyrt mikið kvartað undan honum. Þvert á móti jók hann vinsældir sínar í Skagafirði og var kosinn á þing og hefur styrkt heldur sinn flokk í því héraði. Þær vinsældir fékk hann m.a. út á það að hann, próflaus maðurinn, stundaði kennslu með ágætum árangri. Samkvæmt þessum lögum hefði það verið aldeilis útilokað þannig að Ragnar Arnalds, hv. þm. frá Mánaþúfu, Varmahlíð í Skagafirði, hefði ekki getað kallað sig skólastjóra. En inn á þessa braut vilja menn ganga.
Ég ætla mér ekki að tefja þetta mál. Ég vil aðeins láta þessi fáeinu atriði koma hér fram. Ég vil einnig að það komi skýrt fram að það er ekki af einhverri andstöðu, meðfæddri eða áunninni, við kennara sem ég segi þetta. Sjálfur hef ég verið kennari í nokkur ár, á systkini sem eru kennarar, á móður sem er skólastjóri, báðar ömmur mínar voru kennarar og afi minn jafnframt og amma og afi kynntust í Kennaraskólanum. Ég á ýmislegt að þakka kennurum eins og heyra má af þessari upptalningu. (Gripið fram í: Eru þau þá með réttindi?) Þau eru með réttindi. Ja, önnur amma mín hafði ekki réttindi, en ég efast um að hún hafi verið nokkuð verri kennari en hinir.
En þetta er ekki mergurinn málsins. Mergurinn málsins er hvort ofan á þá þekkingu og það nám sem menn taka út í skólum þurfi virkilega að fá lögverndaðan stimpil til þess að menn fái að starfa þegar jafnvel stundum stendur svo á að hægt er að leita til jafnvel betri manna, eins og ég hef hér nefnt dæmi um, til þess að takast á við slík störf. Er þetta ekki öfugþróun á sama tíma og nágrannaþjóðir eru að hverfa frá þessu miðaldafyrirkomulagi, t.d. að því er varðar iðnir, og eru reyndar að reyna að losa um þessar hömlur?
Mér er ljóst að sumir halda því fram að hér sé um að ræða hluta af kjarasamningi. Það ber auðvitað að virða. Þetta er stjfrv. sem auðvitað gerir okkur stjórnarþm. nokkuð ábyrga fyrir þessu frv. Það skal þó tekið fram að stjórnarþm. höfðu óbundnar hendur um stuðning við frv.
Ég mun ekki, þrátt fyrir að það sé auðvelt verk í þinglok, koma í veg fyrir að þetta frv. verði samþykkt. Það er m.a. af þeim ástæðum að nú er ljóst að afgreidd hefur verið út úr nefnd þáltill. sem gerir ráð fyrir að ríkisstj. láti kanna hver áhrif af slíkri lögbindingu eða lögverndun starfsréttinda sé. Ég ætlast til þess, ef sú till. verður samþykkt, að ríkisstj. kanni þetta mál, fari í gegnum þau lög sem eru í gildi, þar á meðal þessi lög ef þetta frv. verður samþykkt, og skili þinginu skýrslu.
Þess vegna sé ég ekki ástæðu til þess að látið verði stranda á réttindum þess eina hóps sem nú sækist eftir því að fá þau forréttindi sem ýmsar aðrar stéttir hafa hér á landi.
Herra forseti. Ég taldi skyldu mína að láta þessi viðhorf koma fram þannig að ljóst sé að þótt þetta frv. verði að lögum þarf hæstv. ríkisstj. að láta fara fram ítarlega könnun á því hvort ekki beri að hverfa frá þeirri stefnu sem hefur verið fylgt hér á landi og felst í því að veita ákveðnum starfsstéttum svo mikil forréttindi eins og m.a. kemur fram í þessu frv.