19.04.1986
Efri deild: 82. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4213 í B-deild Alþingistíðinda. (3879)

423. mál, áfengislög

Landbrh. (Jón Helgason):

Hæstv. forseti. Ég get ekki annað en látið í ljós vonbrigði mín með þessa brtt. frá hv. meiri hl. allshn. Ég held að málið hafi ekki verið skoðað nægilega frá öllum hliðum áður en hún var sett fram. Eins og frsm. meiri hl. sagði er hægt að ræða þetta mál frá mörgum hliðum og ég ætla að reyna að forðast það en vil aðeins taka eitt atriði þá sem ég vil benda á til stuðnings afstöðu minni.

Það hefur komið fram í fjölmiðlum í vetur að neysla og jafnvel sala á ólöglegum fíkniefnum færi fram í vínveitingahúsum. Ég býst við að við séum öll sammála um að slíkt er vitanlega algjörlega óviðunandi. Ég skrifaði því öllum lögreglustjórum bréf og óskaði eftir því að þeir reyndu að fylgjast gaumgæfilega með þessu og reyndu að koma í veg fyrir að slíkt ætti sér stað. Nú er það svo að þó að þeir sem á húsin fara séu nokkuð sannfærðir um að slíkt eigi sér stað getur verið erfitt að sanna það til fulls. Þá verður að dæma meira eftir þeim brag sem á staðnum er og öðru slíku. Ég ræddi þessi mál við formann Samtaka veitinga- og gistihúsaeigenda og hann var mér vitanlega sammála um að gegn slíku þyrfti að berjast. Það væri óviðunandi fyrir samtökin að slíkt ætti sér stað og var mjög fús til samstarfs til þess að vinna gegn þessu. Það var ákveðið að lögreglan léti í té leiðbeiningar um það til starfsmanna veitingahúsanna hvernig hægt væri að fylgjast með þessu og koma í veg fyrir slíkt. En ef slíkt ber ekki árangur er eina úrræðið sem lögregla hefur að svipta staðinn leyfi, og þá vínveitingaleyfi vegna þess að bragur er ekki sem skyldi þó svo að ekki sé sannað beinlínis að um ólöglega fíkniefnaneyslu sé að ræða.

Með þessari breytingu er meiri hl. allshn. að kippa fótunum undan þessum möguleika fyrir lögreglustjóra. Ég er alveg sannfærður um að það er ekki vilji meiri hl. allshn. að torvelda möguleika á því að berjast gegn ólögmætum fíkniefnum og þeir vilja ekki stuðla að því að slíkt sé erfiðara. Ég vil því eindregið mælast til þess að þessi brtt. verði dregin til baka til 3. umr. svo að nefndinni gefist tóm til að skoða málið betur og íhuga það milli umræðna þannig að hér verði ekki um slys að ræða í afgreiðslu málsins sem stuðlaði að þróun sem við áreiðanlega erum öll sammála um að vilja koma í veg fyrir.