06.11.1985
Neðri deild: 13. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 459 í B-deild Alþingistíðinda. (388)
28. mál, skattafrádráttur fyrir fiskvinnslufólk
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Örstutt athugasemd vegna langrar ræðu hv. þm. Sighvats Björgvinssonar. Ég ætla ekki að endurtaka það sem ég sagði í mjög stuttri og skýrri ræðu við 1. umræðu þessa máls. Ég nefndi þar þær þrjár meginástæður fyrir því að ég er andvíg þessu frv. og tvær þýðingarminni ástæður. Ég ætla ekki að endurtaka það hér.
En mig langar að spyrja hv. þm. Sighvat Björgvinsson: Hvaða stétt í landinu ætlar hann að taka að sér að greiða þessa skattaívilnun fiskvinnslufólks? Ætlar hann það iðnverkafólkinu? Tæplega. Ekki taka það að sér okurkarlar. Ekki heldur blásnauðir sjálfstæðir atvinnurekendur. Hverjir eiga að greiða þetta? Kennararnir sem hafa nefnilega ekki einu sinni 29 þús. kr. á mánuði heldur líklega nú í kringum 26 þús. Eiga þeir að greiða þessar skattaívilnanir? Ég held að þm. og þeir flm. frv. hljóti að hafa gert ráð fyrir því að einhvers staðar að kæmu þessar tekjur. Á að draga úr ellilífeyrisgreiðslum? Hvar á að finna þessa peninga?
Ég held að sannleikurinn sé sá að launamálum í þessu landi er komið svo að allt launafólk er með laun langt undir eðlilegri framfærslu. Núna þegar vaxtamálin og verðtrygging lána eru eins og þau eru eru þessi laun gjörsamlega hlægileg. Lán frá Húsnæðisstofnun ríkisins, sem var 40 000 kr. upphaflega, árið 1981, er nú, þótt búið sé að borga af því allan tímann, 154 000 kr. Ég leyfi mér því, hv. þm. Sighvatur Björgvinsson, að halda því fram að jafnvel tiltölulega hálaunaðan fiskverkamann frá dæminu um 400 þúsundin muni tiltölulega lítið um 28 000 kr. skattaafslátt. Ég tala nú ekki um einstæðu konuna sem fær 4800 kr. til baka yfir árið. Þetta er ekkert sem breytir neitt kjörum þessa fólks. Það er það sem ég vil leggja áherslu á og jafnframt fá svar við því: Hvaða stétt í þessu landi, hvaða launamenn eiga að borga þetta öðrum fremur?