06.11.1985
Neðri deild: 13. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 465 í B-deild Alþingistíðinda. (392)
28. mál, skattafrádráttur fyrir fiskvinnslufólk
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Það eru örfá atriði sem mig langar til að gera að umtalsefni í þessu máli sem hér er til umræðu. Í fyrsta lagi vil ég segja að það er ekkert óeðlilegt að mál af þessu tagi rekist inn í sali Alþingis, ekki síst vegna þess að fiskvinnslufólk hefur barist í þessu máli og ég kannast við að í röðum þess og í félögum verkalýðsins um land allt hefur verið beðið um slíkar skattaívilnanir eins og hér er verið að fara fram á.
Ég kem hér aðallega til þess að fjalla um eitt atriðið í grg. sem fylgir þessu frv., en á bls. 2 í grg. neðst segir, með leyfi forseta: „Í stað aukinnar vinnslu hráefnis frá sjávarútveginum í landinu sjálfu hefur verið um að ræða samdrátt í vinnslu en vaxandi hráefnisútflutning, jafnvel til samkeppnisaðila í fiskvinnslu sem selja síðan þennan afla af Íslandsmiðum verkaðan í samkeppni við fyrirtæki Íslendinga sjálfra. Þannig má segja að Bretar séu að hefja á ný sínar gömlu úthafsveiðar á Íslandsmiðum til verkunar heima fyrir; að vísu undir íslensku flaggi svona að nafninu til. Þessi öfugþróun, sem á rætur sínar að rekja til lélegra launakjara í fiskverkun samanborið við önnur störf, er ekki aðeins hættuleg sjávarútveginum heldur og þjóðarbúskapnum í heild“ o.s.frv., o.s.frv.
Það vill svo til að ég þekki nokkuð til þessarar greinar, ekki síst í kjördæmi hv. 1. flm., og staðan er sú í fæðingarbæ hans að skip sem eiga að sjá frystihúsum fyrir hráefni hafa sent fiskinn til útlanda og atvinnuleysi er í fiskvinnsluhúsi dag eftir dag og fólk á atvinnuleysisskrá, m.ö.o. nægt fólk er til að vinna úr meira hráefni heldur en því sem berst á land vegna þess að fiskurinn er seldur til Bretlands, m.a. Og hvers vegna skyldi þetta vera gert? Er það af þeirri mannvonsku sem menn gætu ímyndað sér eftir að hafa lesið það sem segir í grg.? Ég held ekki. Ástæðan er einfaldlega sú að vegna aflabrests á miðunum við Bretland hefur fengist óvenjulega gott verð fyrir ferskfisk á þessu ári. Það gott verð að ekki borgar sig í mörgum tilvikum, þrátt fyrir nægt vinnuafl, að fara með hráefnið í gegnum frystihúsið, skera hráefnið í sundur, vinna úr því með þessu ódýra vinnuafli sem stundum er sagt frá í frystihúsunum, setja það í dýrasta rafmagn á Íslandi til geymslu og fá ekki greiðslur fyrir þetta fyrr en eftir 2-3 mánuði. Ég hef unnið við að stýra frystihúsi á sumrin, undanfarin sjö sumur, og ég hef nokkuð fylgst með þessari grein og veit að það er ósköp einfalt reikningsdæmi að sjá út að það borgar sig að draga saman seglin frá fyrirtækjunum séð, vinna fiskinn í dýrustu pakkningar á Bandaríkjamarkað en vara sig á að leggja ekki svo mikið upp hjá frystihúsunum að fiskurinn skemmist. Það er miklu betra að útgerðin sendi þennan fisk til útlanda, þar á meðal til Bretlands og fái þar fyrir hann tvö- til þrefalt verð.
Það er staðreynd sem ekki verður á móti mælt að sjómenn á þessu svæði, þ.e. á Ísafjarðarsvæðinu, hafa fengið verulegar kauphækkanir frá síðasta ári af þessari ástæðu. Sú tíð var að það var miklu minni vandi að taka við miklum afla þegar hægt var að hengja hluta hans upp og Nígeríumarkaðurinn var í lagi, en við verðum að átta okkur á að það er ekki allt sem sýnist í sjávarútvegi og það kann að vera heppilegra nú um stundarsakir að selja ferskan fisk heldur en fá minna verð fyrir fiskinn eftir að við höfum reynt að vinna úr honum hérna heima. Þetta vildi ég að kæmi fram vegna þess að þessi kafli í grg. bendir til annarra hluta. (GJG: En frv. sjálft?)
Ef við víkjum síðan að frv. sjálfu sem leggur til að reynt sé að bæta kjör fiskvinnslufólks með þeim hætti sem þar segir, þá held ég að við verðum fyrst aðeins að átta okkur á því vandamáli sem við er að glíma, þ.e. hvernig á því stendur að fólk fæst ekki til starfa í frystihúsum. Ég held að ein meginástæðan sé sú að fólk getur fengið vinnu mjög víða annars staðar og það er keppt um þetta vinnuafl sem vinnur við tiltölulega óörugg störf, eins og hv. 7. þm. Reykv. veit best því að hann flutti frv. á síðasta þingi sem veit að því máli. Ástæðurnar fyrir því að hægt er að fá mörg önnur störf eru einmitt þær, sem hér hafa verið nefndar, að það er þensla í þjóðfélaginu. Þenslan stafar fyrst og fremst af því að við rekum þetta þjóðarbú með miklum halla, tekjur og gjöld standast ekki á og við söfnum erlendum skuldum.
Eigi stjórnvöld að sinna þessu máli af einhverju viti þá á að taka á því máli fyrst og fremst. Það á að koma í veg fyrir að þenslan leiði til þess að vinnuaflið, fólkið, sem starfar í útflutningsgreinunum, hverfi úr þeim og yfir í aðrar greinar, t.d. í verslun og þjónustu, bæði í einkaþjónustu og opinbera þjónustu.
Í öðru lagi skulum við viðurkenna það fyrir okkur að erfiðleikarnir í sjávarútvegi stafa af því að þegar landhelgin var færð út í 200 mílur héldu menn í einlægni sinni - og ég held að ekki sé hægt að segja að það hafi verið gert af neinum öðrum ástæðum - að hægt væri að sækja í sjóinn nánast án takmörkunar. Það reyndist ekki rétt. Menn eru almennt sammála því í dag að fiskiskipaflotinn, sem gerður er út frá Íslandi, sé of stór miðað við þann afla sem taka má úr sjó.
Það gerðist jafnframt í fiskvinnslunni að menn trúðu því að ekki væri hægt að selja fisk á Bandaríkjamarkað nema að breyta frystihúsum í stórum stíl og gífurlegar fjárfestingar fóru í þessa hluti sem hafa skilað sér seint og illa.
Stundum er talað um „strúktúr-vandamál“ þegar svona hlutir koma upp og er ekki góð íslenska. En þetta leiðir til þess að sjávarútvegurinn, bæði fiskvinnslan og eins útvegurinn, á í framtíðinni og á næstu mánuðum eftir að lenda í erfiðleikum sem eru óhjákvæmilegir og lýsa sér m.a. í því að fyrirtæki geta ekki haldið áfram rekstri, verða gjaldþrota og til uppboða kemur. En menn mega ekki gleyma því að uppboð á atvinnufyrirtæki þýðir ekki að fyrirtækið haldi ekki áfram að starfa síðar, það þýðir einfaldlega að menn viðurkenna þann raunveruleika að fjármagnskostnaðurinn var orðinn of mikill. Þetta er önnur saga. En á þetta vildi ég benda því að þetta kemur málinu við, þetta kemur því máli við að sjávarútvegurinn og fiskvinnslan eru ekki samkeppnisfær við aðrar atvinnugreinar. Nú hef ég nefnt tvær ástæður.
Þá er spurningin: Á maður að leysa þetta með skattfrádráttarreglunni? Það er auðvitað hægt að hugsa sér það. En þá verða menn að átta sig á því: Ætla þeir að gera það með því að lækka gjöld sem renna til ríkisins eða ætla þeir að varpa byrðinni yfir á aðra, jafnvel aðra sem eru að vinna óþægileg, erfið og ekki eftirsóknarverð störf? Þessu verða menn að svara. Mér finnst menn ekki hafa svarað þessum spurningum sem hafa komið hér frá ýmsum hv. þm., þar á meðal þm. Kvennalistans.
Eða ætla menn að orða þetta þannig að það eigi að lækka tekjur ríkisins yfir höfuð? Ef menn meina það þurfa þeir líka að svara því hvað þeir ætla að skera niður í staðinn.
Við þurfum enn fremur að hafa í huga að tekjur fiskvinnslufólks eru ákaflega misjafnar frá einum stað til annars. Á því svæði sem 1. flm. þekkir mjög vel eru tekjur ekki afleitar, hvorki hjá körlum né konum. Þar eru möguleikar miklir en vinnan auðvitað mjög erfið. En annars staðar, þar sem vinnan er stopulli, hafa menn verulega minni tekjur. Þá komum við að því sem skiptir ákaflega miklu máli við þessa aðferð sem þarna er um að ræða, þ.e. að þeir tekjuminnstu fá engan skattfrádrátt vegna þess að þeir borga ekki skatta.
Nú skal þess getið, sem kemur fram í grg., að flm. benda á að hægt sé að fara aðrar leiðir eins og t.d. að nota krónutöluleiðina og það er ugglaust betri leið. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að fremur en að fara þessa leið fyrir einstaka hópa þegar upp koma vandamál af þessu tagi, þá eigum við að stefna að því að lækka tekjuskatta yfir höfuð. Að því held ég að við ættum að stefna. Ég veit að Alþfl. er þeirrar skoðunar og ég býst við að flestir séu þeirrar skoðunar í dag vegna þess að tekjuskatturinn er ranglátur launamannaskattur eins og margoft hefur komið fram í þessum umræðum. Ég held að það eigi fremur að stefna að því heldur en að gera þetta kerfi, sem við búum við, enn þá vitlausara en það er í dag.
Umr. frestað.