19.04.1986
Neðri deild: 89. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4238 í B-deild Alþingistíðinda. (3926)

413. mál, þjóðarátak til byggingar þjóðarbókhlöðu

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég hélt nú að formanni mínum væri ljóst hvaða afstöðu ég hefði haft í þessu máli. Hann þyrfti því ekki að tala hér í þeim dúr, að því er mig varðar, um afstöðuna til þessa máls. Ég þykist þó vita að ýmsum menningarfrömuðum hér í hv. deild líki ekki að einhver komi hér upp og andmæli þessu máli. Eigi að síður skal það nú gert. Það er ekki vegna andstöðu við þjóðarbókhlöðuna sem slíka. Hún er út af fyrir sig þarft fyrirtæki og hefði kannske löngu átt að vera búið að hrinda því í framkvæmd að koma henni upp. En það er fullt af öðrum fyrirtækjum í landinu, það er fullt af öðrum verkefnum sem þarf að vinna að ekkert síður en þjóðarbókhlöðunni og þarf peninga til.

Ég er ekkert sannfærður um það - hvað sem hæstv. menntmrh. segir - að hæstv. fjmrh. sé að fallast á eignarskattinn. Mér þætti gaman að heyra hæstv. fjmrh. lýsa því yfir sem formann Sjálfstfl. að þeir væru hættir við fyrri stefnu að því er þessi mál varðar. Ég á eftir að sjá og heyra slíka yfirlýsingu og bið um hana frá hæstv. fjmrh., sé hann í grennd og heyri mál mitt eða lesi það einhvers staðar.

Mér þykir þetta einkennileg málsmeðferð - og það kom hv. þm. Jón Baldvin hér inn á áðan - eftir það sem á undan er gengið, þó að ekki sé lengra síðan en í desembermánuði þegar hæstv. menntmrh. virðist hafa gengið fram í því að fella framlög til þjóðarbókhlöðu.

Auðvitað getur mönnum yfirsést og menn eiga heimtingu á því að skipta um skoðun ef svo er, það er ekkert við því að segja nema gott. En mér þykir þetta einkennilegt líka vegna þess - ég vildi helst að hæstv. samgrh. færi ekki út alveg strax - mér þykir þetta einkennilegt og vildi gjarnan heyra skoðanir hæstv. samgrh. á því hvað honum finnist um þetta málefni. Finnst honum alveg sjálfsagt að láta 125 millj. á næstu þremur árum í þjóðarbókhlöðuframkvæmd þegar ástandið er eins og það er núna í hafnamálum, í flugmálum, í skólamálunum og svona mætti lengur telja upp. Að því er ég best veit fara um 20 millj. kr. í ár til framkvæmda í höfnum. Ég veit að hæstv. samgrh. er ekki ánægður með slíkt. (Samgrh.: Það er miklu meira sem fer til framkvæmda.) Það er ekki framkvæmt fyrir meira, hitt var skuld. Hitt var skuld frá fyrri árum.

Ég veit að hæstv. samgrh. er mjög óhress yfir þessum málum og ég botna ekkert í honum ef hann er stuðningsmaður að þessu frv. án þess að eitthvað meira eigi þá að fylgja með. Ef svo er vil ég gjarnan fá að heyra það: Á eitthvað meira að fylgja eftir með þessu máli til framkvæmda við aðra þætti í verkefnum? Það er fullt af skólum sem standa nánast auðir og ekki er hægt að starfrækja vegna fjármagnsleysis. Menn hefðu þegið að fá 125 millj. á ári næstu þrjú árin til viðbótar í vegamálin og menn hefðu þegið að fá það í flugmálin. Þannig mætti lengi telja upp.

Ég er ekki þeirrar skoðunar að þetta mál eigi eitt og sér að taka út úr og láta það í forgangsröð, fyrir utan hitt að það er nægjanlegt að fjalla um framlög til þessa máls við afgreiðslu fjárlaga á hausti komanda. Það verður ekkert gert í framkvæmd fyrir þetta mál fyrr en á næsta ári, árinu 1987.

Ég skil hæstv. menntmrh. afskaplega vel, jafnröskan mann og duglegan - hann vill láta verkin tala. En á þessu máli er hálfgerður flumbruháttur. Ég veit líka að hæstv. menntmrh. er mér sammála um að það er fjöldinn allur af öðrum mikilvægum málum sem þarf að taka inn í þessa mynd og þarf að hrinda í framkvæmd. Ég hygg að þetta mál, þó gott sé, geti beðið til afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1987. Ef menn hafa fleiri ráð til að framkvæma í öðrum málum vil ég gjarnan fá að heyra slíkt því að ég tel önnur mál nauðsynlegri. Þó að þetta mál sé nauðsynlegt tel ég önnur mál nauðsynlegri. Ég mun því greiða atkvæði gegn þessu máli við afgreiðslu.