19.04.1986
Neðri deild: 89. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4239 í B-deild Alþingistíðinda. (3927)

413. mál, þjóðarátak til byggingar þjóðarbókhlöðu

Stefán Valgeirsson:

Herra forseti. Ég er alveg himinlifandi yfir því að þessi sinnaskipti hafa orðið á Sjálfstfl. í sambandi við eignarskattinn. Við vorum að berjast í því í vetur að reyna að fá eitthvað í opinberar framkvæmdir. Við vorum að berjast í því að reyna að bjarga höfnum sem t.d. liggja undir skemmdum eða byggðarlögum sem eru algerlega í vandræðum vegna þess að hafnirnar eru þannig að þær geta ekki með neinu móti þjónað þörfinni. Ég ætla ekki að fara að telja þessar hafnir upp, þær eru svo margar. Það er blátt áfram neyðarástand sums staðar í hafnamálum út um allt land.

Ég er því mjög feginn þessum sinnaskiptum því að það mátti ekki minnast á það í vetur við afgreiðslu fjárlaga að leggja á eignarskatt. En við framsóknarmenn lögðum þunga áherslu á að það yrði gert til að bjarga eitthvað þessum málum. Ég skal svo sannarlega styðja menntmrh. í þessu máli með því nú að auka þennan skatt. Ég legg til að þessi skattur verði a.m.k. tvöfaldaður á næsta ári og helmingurinn fari í að reyna að bjarga eitthvað þeim höfnum sem eru verst settar.

Ég held að a.m.k. viti það allir landsbyggðarþingmenn - og ekki síður hæstv. menntmrh. en aðrir - hvernig ástandið er í þessum málum. Ég treysti því að hann taki mjög undir mína till. að þessu leyti. Hitt er annað mál að það kann að vera að það þyki betra að geyma þessi mál öll til haustsins. En það skal ekki standa á mér að greiða þessari till. atkvæði með þessu skilyrði þó.