19.04.1986
Neðri deild: 90. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4243 í B-deild Alþingistíðinda. (3943)

430. mál, Happdrætti Háskóla Íslands

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingu á lögum um Happdrætti Háskóla Íslands. Það er tvennt sem felst í þessu frv. Annars vegar er framlenging á því leyfi sem Háskólinn hefur nú, einkaleyfi til peningahappdrættis sem rennur út í árslok 1988, og hins vegar að Háskólinn fái leyfi til peningahappdrættis sem ekki er bundið við flokka og er nokkru rýmra en núgildandi lög leyfa.

Á þeim 50 árum sem liðin eru síðan Háskólinn fékk sitt einkaleyfi hafa aðstæður í þjóðfélaginu breyst geysimikið og því eðlilegt að einhver breyting verði á formi happdrætta. Háskólinn hefur óskað eindregið eftir því að fá þessa heimild og það hefur verið talið rétt af ríkisstj. að verða við því með flutningi þessa frv. sem hv. Ed. hefur þegar samþykkt.

Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði frv. vísað til 2. umr. og hv. allshn.