21.04.1986
Efri deild: 83. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4249 í B-deild Alþingistíðinda. (3952)

73. mál, varnir gegn mengun sjávar

Frsm. (Egill Jónsson):

Virðulegur forseti. Eins og hv. alþm. hafa séð hefur Nd. gert breytingar á frv. til l. um varnir gegn mengun sjávar. Þessar breytingar eru varðandi 21. og 33. gr. frv. og eru ekki efnisbreytingar heldur tiltölulega mjög smávægilegar orðalagsbreytingar.

Samgöngunefndarmenn hafa haft samráð sín á milli um að mæla með því við Ed. að frv. verði samþykkt með þeim breytingum sem um getur á þskj. 952.