21.04.1986
Efri deild: 83. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4250 í B-deild Alþingistíðinda. (3955)

414. mál, Viðey í Kollafirði

Ragnar Arnalds:

Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að ég er ekki ýkja hrifinn af þessu máli eða því hvernig að því hefur verið staðið.

Í fyrsta lagi álít ég, ef ríkið tekur ákvörðun um að gefa sveitarfélagi, í þessu tilviki höfuðborg landsins, stóra gjöf á afmælisdegi borgarinnar, að málið sé þess eðlis að það eigi að hafa samráð við alla stjórnmálaflokka um hvernig að því skuli staðið. En það er skemmst frá að segja að það var ekkert samráð haft við stjórnarandstöðuflokka um undirbúning þessa máls. Mér er reyndar sagt að flokki hæstv. menntmrh. hafi láðst að hafa eðlilegt samráð við samstarfsflokk sinn í ríkisstj., en það er önnur saga og kemur mér ekki við.

En í fyrsta lagi er málsmeðferðin óeðlileg. Þegar um gjöf af þessu tagi er að ræða er ekki um að ræða pólitískt mál í sjálfu sér og æskilegt að eðlileg og góð samstaða geti tekist um hvernig að gjöfinni skuli staðið.

Í öðru lagi hefði ég talið að það hefði þurft að liggja fyrir að haft hefði verið fullt samráð við þjóðminjavörð um framkvæmd málsins og hann væri því að öllu leyti samþykkur áður en málið er flutt. En eftir þeim fregnum sem ég hef af þessu máli var alls ekki þannig staðið að málum. Þjóðminjavörður var mjög andvígur því að frv. yrði flutt og mun ekki hafa fallist á þessa niðurstöðu fyrr en eftir að frv. var komið fram á Alþingi og hann taldi sig meira og minna standa frammi fyrir gerðum hlut. Þetta er ámælisvert og flokkast ekki undir eðlilega eða skynsamlega málsmeðferð.

Í þriðja lagi má velta því fyrir sér hvort eðlilegt sé að ríkið gefi sveitarfélögum stórar gjafir í hvert sinn sem þau eiga afmæli. Það eru mörg sveitarfélög á landinu og margir afmælisdagarnir. (Gripið fram í: Dýr mundi Hafliði allur.) Já, dýr yrði Hafliði allur ef öll sveitarfélög ættu að þiggja slíkar gjafir því að afmælin eru æðimörg og hætt við að ýmis önnur sveitarfélög eigi eftir að upplifa mikla og merka afmælisdaga á komandi árum og þá er spurningin hvort hér er verið að skapa fordæmi.

Hins vegar er það skoðun mín að eftir að frv. hefur komið hér fram og eftir að málið hefur verið rætt við borgarstjóra Reykjavíkur og borgarstjórn sé málið komið á það stig að ekki verði aftur snúið og ekki hæfilegt að kippa að sér hendinni þegar gjöfin er um það bil að komast í fangið á afmælisbarninu. Það væru veisluspjöll á afmælisári að standa þannig að málum. Því hef ég ákveðið að skrifa undir með fyrirvara að þessi gjöf verði gefin þrátt fyrir þá vankanta sem ég sé á þessu frv. og allri málsmeðferð og undirbúningi þess.