21.04.1986
Efri deild: 83. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4252 í B-deild Alþingistíðinda. (3957)
414. mál, Viðey í Kollafirði
Stefán Benediktsson:
Frú forseti. Við erum í þann veginn að gefa stóra gjöf og það er svo sem ekkert að því annað en það að ég verð að taka undir það með öðrum að það er óneitanlega fýla í hluta gefenda. Ég er þar með talinn. Ég er í fýlu einfaldlega vegna þess að það var ekki við okkur rætt út af þessum málum. Ákveðin gleði og ánægja er því yfirleitt samfara að gefa gjafir og skiptir þá ekki öllu máli hversu höfðinglegar þær eru heldur það hugarfar, sá hugur sem fylgir. Okkur er kannske farið ekki alls ólíkt glæpamanninum sem lýst er í upphafi Íslandsklukku, að það var stolið frá okkur glæpnum. Að fá ekki að vera með við að taka ákvörðun um svona lagað eyðileggur á vissan hátt gleðina af því að gefa.
Það er tvímælalaust líka ámælisvert og til vansa að gjöfin skuli ekki vera eins vel úr garði gerð og hægt væri. Þá á ég við að Viðeyjarstofa hefði átt að vera komin í það horf sem ætlast var til að hún væri komin í áður en gjöfin var afhent.
Ég ætla ekki að fara að gera mönnum upp einhverjar annarlegar hugmyndir eða forsendur vegna þessarar gjafar. Það hefði svo sem mátt hugsa sér að menn hefðu velt vöngum yfir því hvaða gjöf ætti að gefa. Það eru margar aðrar gjafir sem hægt væri að færa Reykjavíkurborg í tilefni þessa afmælis, eins og t.d. gamla tukthúsið hérna í Bakarabrekkunni, sem hátíðarvott. En það er vonandi að Reykjavíkurborg og forráðamenn hennar kunni að meta þessa gjöf og haldi áfram að vera jafnþægir og þeir hafa verið okkur hér á þingi hingað til. Þegar menn gefa svo stórar gjafir eins og hér er um að ræða þótti það alltaf hér áður fyrr höfðingjasiður að menn skiptust á gjöfum. Það er spurningin hvað Reykjavíkurborg gefi okkur í staðinn þannig að höfðinglega sé að málum staðið í heild.