21.04.1986
Efri deild: 86. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4276 í B-deild Alþingistíðinda. (4003)
368. mál, selveiðar við Ísland
Frsm. meiri hl. (Jón Kristjánsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti meiri hl. sjútvn. um frv. til l. um selveiðar við Ísland sem liggur hér fyrir á þskj. 1029.
Nefndin hefur haft mjög skamman tíma til þess að fjalla um þetta frv., en það hefur verið til ítarlegrar skoðunar í Nd. Við notuðum þó þann tíma til þess að kalla til viðræðu fulltrúa frá fiskvinnslufyrirtækjum, Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna, Sambandi ísl. fiskframleiðenda og sjávarafurðadeild SÍS. Einnig kölluðum við fyrir fulltrúa frá Búnaðarfélagi Íslands og samtökum áhugamanna um selveiðihlunnindi.
Í nefndinni komu fram skiptar skoðanir á málinu og nefndin klofnaði. Meiri hl. leggur til að frv. verði samþykkt en einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til að flytja eða fylgja brtt. í málinu.
Minni hl. nefndarinnar hefur skilað áliti á sérstöku þskj. en að því stendur hv. 5. þm. Norðurl. e. og hann mun gera grein fyrir því hér á eftir.
Skúli Alexandersson var fjarverandi við lokaafgreiðslu málsins.