21.04.1986
Efri deild: 86. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4277 í B-deild Alþingistíðinda. (4005)

368. mál, selveiðar við Ísland

Forseti (Salome Þorkelsdóttir):

Hér gerast fundarstörf með svolítið afbrigðilegum hætti, en það er svo margt sem gerist hér með öðrum hætti en venjulega, vægast sagt, svo að nú ætlar forseti að gefa hv. 4. þm. Vesturl. orðið sem snöggvast og hann ætlar aðallega að ræða um þingsköp.