21.04.1986
Efri deild: 86. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4277 í B-deild Alþingistíðinda. (4008)

368. mál, selveiðar við Ísland

Frsm. meiri hl. (Jón Kristjánsson):

Virðulegur forseti. Já, það eru nokkur orð til skýringar í sambandi við meðferð þessa máls. Sjútvn. hélt fund í morgun um málið og þá var boðað að það yrði fundur aftur seinni partinn. Einhvern veginn hafa ummæli hv. 4. þm. Vesturl., að hann yrði fjarverandi úr húsinu á þessum tíma, farið fram hjá mér. Ég boðaði fund hér í hliðarherbergi seinni partinn og lét þá leita að hv. þm. í húsinu en hann var þá ekki viðstaddur. Hann hafði ekki boðað andstöðu við frv. á fundinum í morgun. Nefndin var sammála um að afgreiða málið út og einstakir nefndarmenn áskildu sér rétt til þess að flytja eða fylgja brtt. Hv. 4. þm. Vesturl. hafði ekki boðað að hann mundi skila séráliti í málinu. Við ræddum saman núna eftir kvöldmat og ég bauðst til að kalla saman fund í nefndinni aftur en hann taldi þess ekki þörf og sagði orðrétt „að þessi vinnubrögð yrðu ekki aftur tekin“. En hann boðaði þá ekki að hann mundi skila séráliti.

Mér tókst ekki að ná til hv. 4. þm. Vesturl. áður en þessi umræða byrjaði, ég reyndi það til þess að aðvara hann. Ég reyndi að ná í hann í síma og sendi þingverði til þess að aðvara hann en það tókst ekki. Þessar eru skýringarnar. En það er algjör misskilningur að meiri hl. sjútvn. ætli að neyða hv. þm. til þess að skila séráliti í málinu, og var alls ekki ætlunin að ganga yfir hann að neinu leyti í sambandi við afgreiðslu málsins. Í hita dagsins hafa einhvern veginn farið fram hjá mér þau skilaboð hv. þm. að hann yrði fjarverandi úr húsinu á þessum tíma á fundi annars staðar. Það er rótin að þessari málsmeðferð. Ég harma það, eins og er orðtæki hjá mörgum í þinginu, að þetta hefur gerst svona.