21.04.1986
Neðri deild: 92. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4299 í B-deild Alþingistíðinda. (4031)
413. mál, þjóðarátak til byggingar þjóðarbókhlöðu
Frsm. (Páll Pétursson):
Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um þetta frv. og skilað nál. á þskj. 986. Það undirrita Páll Pétursson, Friðrik Sophusson,
Ólafur G. Einarsson, Halldór Blöndal og með fyrirvara Svavar Gestsson og með fyrirvara einnig Jón Baldvin Hannibalsson.
Það er rétt að geta þess að nefndarmenn telja að ekki sé ástæða til að láta sérstök viðurkenningarskjöl umfram venjulegar kvittanir fyrir þessa skattagreiðslu.