21.04.1986
Neðri deild: 92. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4313 í B-deild Alþingistíðinda. (4056)

259. mál, Útflutningsráð Íslands

Frsm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Aðeins örfá orð út af síðustu ræðu. Ég tel að það sé alveg óþarfi að fá hæstv. viðskrh. þann kaleik að velja alla þessa stjórnarmenn. Það er svigrúm fyrir ráðherrann að skipa stjórnarmann, þann áttunda, en þar segir í 4. gr.:

". . .og einn stjórnarmaður skal tilnefndur sameiginlega af aðilum í útflutningsráði öðrum en hér hafa verið nefndir.“ Þá hafa aðilar í útflutningsráði aðrir en upp voru taldir svigrúm til þess að koma sér saman um einn mann sem ráðherra skipar. Ég tel að það sé eðlilegri og skilvirkari aðferð til að fá góða stjórn í útflutningsráð að gera það með þeim hætti sem lagt er til í frv.

Það er út af fyrir sig rétt að væntanlega kemur ekki til með að reyna á a-lið 6. gr., en það gerir heldur ekki til þó að hann standi. Það er ekki búið að samþykkja lögin um greiðslumiðlun í sjávarútvegi og ég sé ekki að þessi a-liður geri svo sem neitt til þó að hann sé í þessari upptalningu.