07.11.1985
Sameinað þing: 13. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 491 í B-deild Alþingistíðinda. (409)

64. mál, mismunun gagnvart konum hérlendis

Flm. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Ég vil í upphafi míns máls nú koma því til skila, sem mér láðist í lok fyrri ræðu minnar, að ég legg til að till. þessari verði að lokinni umræðu vísað til hv. félmn. Sþ.

Ég vil víkja nokkrum orðum að þeim sjónarmiðum sem fram komu í máli hv. 11. þm. Reykv. í sambandi við þessa till. Mér var það ljóst áður en hv. þm. kvaddi sér hér hljóðs að hún var ekki sérlega hvetjandi þess að þessi till. næði fram að ganga eða á málinu yrði tekið með þeim hætti sem hér er lagt til. Ég er ekki sammála hv. 11. þm. Reykv. um þetta efni og þeim athugasemdum sem hún kom hér fram með í sínu máli. Ég átta mig satt að segja ekki alveg á því hvaða rök þm. finnur fyrir þeirri staðhæfingu að slík úttekt sé betur óunnin en unnin, þ.e. að það verði lagt í hlut jafnréttisráðs að meta það með hvaða hætti verði tekið á þessum samningi og ákvæðum hans sérstaklega en ekki hvatt til þess og tryggt fjármagn til þess af Alþingi að slík úttekt fari fram eins og gert er ráð fyrir hér í till.

Ég vil rökstyðja þetta ögn nánar en fram kom í máli mínu hér áðan með því að vitna til og rifja upp fyrir hv. þingmönnum, þó þess ætti kannske ekki að gerast þörf, hvernig jafnréttisráð er skipað. Skv. 13. gr. laga nr. 65 1985 skal ráðið skipað sjö mönnum og jafnmörgum til vara, einn er skipaður af Hæstarétti og er sá formaður, einn skipaður af félmrh. og er hann varaformaður, einn skipaður af Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja, einn skipaður af Alþýðusambandi Íslands, einn af Vinnuveitendasambandi Íslands, einn af Kvenréttindafélagi Íslands og einn af Kvenfélagasambandi Íslands.

Eins og fram kemur hér eru vissulega til kvaddir fulltrúar í jafnréttisráð frá mörgum stórum heildarsamtökum. Ætla ég ekki að gera við það athugasemdir enda lögfest og stóð ég að samþykkt þessara laga. En það sem ég legg áherslu á með þessari till. og við hv. 10. þm. Reykv., sem er meðflm. minn, er að með samþykkt till. verði komið á beinum tengslum við þingflokka til að fylgjast með þeirri úttekt sem lagt er til að hér verði unnin í nánum tengslum við jafnréttisráð og félmrn. sem fer með þennan málaflokk af hálfu stjórnarráðsins. Ég tel að það skipti mjög miklu að inn í þingflokkana komi milliliðalaus tengsl því að ég teldi einsýnt að þingflokkarnir mundu kveðja til þingmenn til að taka sæti í þessari nefnd eða alla vega aðila mjög tengda þingflokkunum. Með þeim hætti bærust boð inn í þingflokkana um það hvað það er sem einkum á skortir og þetta knýr þingflokkana til að setja sig inn í efni þess víðtæka samnings sem við heimiluðum ríkisstj. s.l. vor að staðfesta.

Því miður er það svo með ýmsa alþjóðasamninga að þeir vilja rykfalla og ekki allt of mikið gerast á grundvelli þeirra nema ýtt sé öfluglega á eftir því að við ákvæði þeirra sé staðið. Á það ekki síst við um þau efni sem hér er um að ræða. Ég held að það gæti verið mikilvægt fyrir þingflokkana á Alþingi að fá í hendur og fá aðstöðu til að fylgjast með úttekt af því tagi sem hér er gert ráð fyrir að unnin verði. Þar með yrðu þeir m.a. knúnir til að fara yfir þau fjölmörgu gögn sem fyrir liggja, m.a. í því riti, sem ég vitnaði hér til áðan. „Konur, hvað nú?", sem er ritstýrt af Jónínu Margréti Guðnadóttur og hafin var dreifing á 24. okt. s.l. Ég held að það gæti ekki orðið annað en til bóta að þingflokkarnir ættu þess kost að fylgjast með slíkri úttekt.

Hv. þm. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir áttar sig á því að jafnréttisráð býr við þröngan fjárhag og hefur ekkert bolmagn, eins og fjárhag þess nú er háttað, til að leggja fram þá vinnu sem þarf til að ýta á eftir að við ákvæði þessa samnings verði staðið. Ég ræddi efni þessarar till. við framkvæmdastjóra jafnréttisráðs, Elínu Flygenring. Hún tjáði mér að vonlítið ef ekki vonlaust væri, eins og fjárhag jafnréttisráðs hefur verið háttað til þessa, að ráðið geti beitt sér fyrir verkefni af því tagi sem lagt er til með þessari till. Án þess að ég ætli að fara að rekja það samtal sem okkur fór á milli, þá kom það fram í máli hennar að ekki gæti verið nema til bóta að fá slíka samþykkt frá Alþingi með fyrirheiti um framlag úr ríkissjóði til að greiða kostnað af þessari úttekt.

Hv. þm. telur að efni þáltill. sé mjög víðtækt og reyni á fjölmörg matsatriði. Það er alveg rétt. Hér er vísað á mjög viðamikið verkefni. Það er um þetta mál sem annað að niðurstaðan í úttekt sem þessari er í mörgum tilvikum háð pólitísku mati og verður það. Svo er um fjölmörg mál. Hitt liggur einnig fyrir að margt af því, sem varðar mismunun gagnvart konum hérlendis, er hægt að sýna fram á tölfræðilega og liggur sumpart fyrir í ýmsum greinargerðum og skýrslum sem m.a. er vísað til í fskj. og tekin eru inn sem fskj. með þessari till.

Ég get líka ímyndað mér að það sé ekkert auðvelt verk - og það veit hv. þm. - að fá menn til að viðurkenna þær staðreyndir sem liggja fyrir í þessum efnum og taka tillit til þeirra. Það er vissulega pólitískt viðfangsefni.

Þm. vék að stafliðum b og c í till. og taldi að þau atriði væru sérstaklega háð mati og að fásinna væri að vænta þess að slíkt mat væri hægt að leggja á þessi efni þannig að allir megi vel við una. Ég geri ráð fyrir því að nokkur tími geti liðið áður en allir átti sig á þeim þáttum sem þarna er um að ræða. En það getur ekki sakað að atrenna sé gerð að þessu máli með þeim hætti sem þáltill. kveður á um og felur félmrh. og jafnréttisráði að beita sér fyrir og gefur þingflokkunum kost á að fylgjast með í þeirri samráðsnefnd sem gert er ráð fyrir að skipuð verði skv. tillögunni.

Hér er á engan hátt verið að grípa fram fyrir hendurnar á jafnréttisráði heldur gert ráð fyrir því að þessi úttekt verði unnin í nánum tengslum við jafnréttisráð eins og skýrt er kveðið á um í tillögunni og í grg. með henni. En það sem væri fengur að er að fyrir lægi vilji Alþingis til að fylgja á eftir staðfestingu þessa samnings með þeirri úttekt sem hér er lagt til og tryggt að kostnaður við það verði greiddur úr ríkissjóði.

Ég er þess fullviss að milli okkar hv. 11. þm. Reykv. er ekki efnislegur ágreiningur um nauðsyn þessa verks sem hér er verið að leggja til. Ég vænti þess að hér sé fyrst og fremst um að ræða spurningu um farsælar leiðir að marki. Ég hvet hv. þm. til að endurskoða afstöðu sína til þessa máls í ljósi þess sem ég hef hér rakið og kæmi mér satt að segja á óvart ef hv. þm. Kvennalista ekki vilja greiða götu þessa máls hér í gegnum Sþ. til að ýta á eftir ákvæðum samnings sem ég veit að hv. þm. báru mjög fyrir brjósti að staðfestur yrði á s.l. vori.

Ég vona, herra forseti, að þrátt fyrir þær athugasemdir, sem hér hafa komið fram, fái þáltill. góðar undirtektir hér í hv. þingdeild og vinna af því tagi, sem hér er lagt til að unnin verði, geti hafist sem fyrst að samþykktri þessari þáltill.