07.11.1985
Sameinað þing: 13. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 495 í B-deild Alþingistíðinda. (412)
64. mál, mismunun gagnvart konum hérlendis
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:
Ég þakka hæstv. forseta að lofa mér að koma hér og gera örstuttu athugasemd. Ég vildi aðeins árétta það, sem hv. flm. virtist hafa gleymt frá því að ég kom hér fyrst í stólinn. að auk umfangs rannsóknarinnar sem ég gerði að umtalsefni þegar ég kom hér í stólinn í annað sinn, þá færði ég rök fyrir því í upphafi máfs míns hér áðan að efnislega væri þessi rannsókn einnig óraunhæf eins og hún væri fram sett. Það er ekki aðeins umfangið sem ég hef hér sett út á, heldur líka til hvers hún á að taka og hvernig.
Ég trúi ekki staðfastlega á góðvilja þeirrar hæstv. ríkisstj. sem nú situr að völdum á Íslandi. Það er nú eitthvað annað, og annað kom ekki fram í máli mínu hér áðan. Ég lýsti því hins vegar yfir að ég mundi knýja á um það við hvert hugsanlegt tækifæri að þessi ríkisstj. stæði við þau fyrirheit sem hún hefur gefið með samþykkt þessa samnings.
Umr. (atkvgr.) frestað.