22.04.1986
Neðri deild: 95. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4369 í B-deild Alþingistíðinda. (4131)

400. mál, verslun ríkisins með áfengi

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Það er aldrei að vita nema ég haldi hérna dálítinn ræðustúf í viðbót. Mér heyrist menn vera eitthvað svona að friðmælast og mælast undan því að málið sé rætt hér almennilega. Ég sé enga ástæðu til þess að menn vorkenni sjálfum sér svo mikið að ekki sé hægt að ræða þetta eins og þurfa þykir.

Ég held að menn hafi eitthvað misskilið mál mitt ef þeir hafa tekið það svo að ég hafi verið að halda því fram að ég læsi þetta frv. þannig að einkaaðilarnir fengju heimild til að annast smásölu á brennivíni. Að sjálfsögðu hefur mér ekki dottið í hug að lesa þetta þannig, enda væri það þá að lesa eins og skrattinn les Biblíuna eins og hér er stundum sagt. Það sem ég á við er að það verður eðlisbreyting á bæði um framleiðsluna og heildsölustarfsemina sem Áfengisverslun ríkisins hefur haft með höndum. Ég geri ráð fyrir því að þessir aðilar myndu reisa sér fabrikkur einhvers staðar úti í bæ og þar yrði framleiðslan. Sömuleiðis yrði þá um einhvers konar dreifingu að ræða á þeirri vöru til útsölustaða ríkisins eða í einhverja heildsölu ríkisins. En það er í sjálfu sér framkvæmdaratriði sem er ekkert aðalatriði í þessum efnum.

Hæstv. fjmrh. virðist hins vegar alls ekki hafa skilið að það sem ég fyrst og fremst hef áhyggjur af eru þær hættur sem koma upp í sambandi við hagsmunaárekstra og annarleg sjónarmið, önnur sjónarmið heldur en verið hafa uppi hjá hinu opinbera sjálfu þegar það hefur haft alla starfsemina á eigin höndum. Ég nenni nú satt best að segja ekki, hæstv. fjmrh., að fara að ræða þessi mál ef menn snúa bara út úr orðum manns og telja engin rök hafa komið fram þrátt fyrr það að þeir hafi hlustað á menn færa ítarleg rök fyrir sínu máli og það fleiri en einn og fleiri en tvo. Þá verður bara að hafa það. Ef menn hlusta þannig á málflutning aðila sem eru á gagnstæðri skoðun, þá er það þeirra eigin ógæfa og ég hef ekkert við því að segja. En fyrir þá aðra sem enn þá hlýða á þessa umræðu og fyrir söguna, þá kem ég að sjálfsögðu minni afstöðu og mínum rökum á framfæri, m.a. vegna þess að reynslan mun væntanlega skera úr um það ef af þessu verður hvort þetta hafi verið skref til góðs eður ei. Og þá vil ég í öllu falli að mín afstaða hafi legið ljóst fyrir og ég hafi komið þeim aðvörunum á framfæri sem ég hef fram að færa í þessu efni.

Það væri út af fyrir sig ánægjulegt, herra forseti, ef formaður Framsfl. væri ekki farinn úr húsinu, að hann kæmi hérna aftur augnablik. Hann misskildi mig nefnilega að nokkru leyti einnig. Ég vil einnig gera þá athugasemd við það sem hann sagði um nefnd um áfengismál að hún gerði ekki sérstaklega athugasemdir við þetta atriði. Það kynni nú að vera vegna þess að þetta mál er tiltölulega nýlega fram komið og sú nefnd hefur væntanlega ekki haft ýkja langan tíma til að kynna sér það og vinna að því eftir að það gerðist. Hefði hún hins vegar fengið það hefði ég á tilfinningunni að hún hefði látið sig þetta varða sem einn lið í sínu verkefni.

Ég hef gert þá opinberu stefnu að heimila ekki auglýsingar á áfengi hér nokkuð að umtalsefni, m.a. vegna þess að ég hélt kannske að það mundi skýra eðli málsins ofurlítið fyrir mönnum og það hvað fyrir mér hefur m.a. vakað í þessum efnum. En svo virðist nú ekki vera. Þegar menn halda því fram að engin eðlisbreyting verði við það að einkaaðilar í landinu fari að hafa af því ágóðavon að framleiða og selja sem mest af áfengi neita menn að viðurkenna þann möguleika að slíkir aðilar grípi þá til einhverra ráða til að koma framleiðslu sinni sem mest og best á markaðinn. Þá er spurning hvort þau viðbrögð viðkomandi samræmast hinni yfirlýstu opinberu stefnu um að leyfa ekki auglýsingar á áfengi. Ég vil biðja menn að hugleiða bara þá auglýsingu sem ein tiltekin brennivínstegund, sem mér skilst að sé átöppuð í Skotlandi, hefur fengið undanfarnar vikur í fjölmiðlum í landi þar sem auglýsingar á áfengi eru bannaðar. Hvað er það nema auglýsing þegar dag eftir dag eru í blöðum og fjölmiðlum sagðar sögur af þessari víntegund, af því hvernig gangi að selja hana hér og hvernig gangi að selja hana þar? Það eru birtar myndir af flöskunum og myndir af miðunum o.s.frv. Hér er auðvitað á ferðinni ákveðin dulbúin auglýsingastarfsemi, vitandi eða óvitandi eftir því hvernig á það er litið. Þetta ætti að leiða mönnum fyrir sjónir að vissulega er þessi hætta fyrir hendi og hlýtur að vera fyrir hendi. Það verður eðlisbreyting í sambandi við hana þegar til koma einstaklingar með hagnaðarvon og hún kemur í spilið. Þessu hélt ég satt best að segja að maður sem lætur sig jafnmikið varða viðskiptalífið og hæstv. fjmrh. mundi átta sig á og gera sér grein fyrir, en svo virðist ekki vera og þá verður enn að sæta því að skilningur hans er sem raun ber vitni á þessum málum.

Nú gengur frsm. nefndarinnar úr þingsalnum og tekur með sér tösku sína. Ég vona að ekki beri að skilja það svo sem hann sé á leiðinni úr þinghúsinu því það væri auðvitað miður ef við yrðum af því að njóta nærveru hans hér og fara þá heldur að þynnast bekkirnir, herra forseti. (Fjmrh.: Já, heldur.) Já, heldur. Ég hefði haldið og eiginlega vænst þess, úr því að þetta er svona gífurlegt forgangsmál hjá hæstv. ríkisstj., að menn létu eftir sér og legðu það á sig að fylgja því alveg til enda í umræðunni og er þá aldrei að vita nema ég mundi reyna að skemmta mönnum með nokkurri umfjöllun um málið í viðbót.

En það er eftir öðru að eðlilegum, að ég tel, óskum um málsmeðferð hér er neitað og síðan tínast einn af öðrum þeir menn úr þingsalnum sem undir venjulegum kringumstæðum ættu að taka þátt í eða sitja undir þessari umræðu.

En það er tvennt sem er ástæða til að vekja sérstaklega athygli á hér þegar fer að síga á seinni hlutann, skulum við segja, af umræðunni. Það er annars vegar Framsfl., sú skepna, og sú frjálshyggja, eins og hv. 3. þm. Norðurl. e. réttilega nefndi, sem felst í þeirri stefnu að hér lítur dagsins ljós stjfrv. þar sem einkaaðilum eru veittar heimildir til að hefja framleiðslu og taka að græða á framleiðslu brennivíns í landinu. Þá held ég nú, herra forseti, að við séum búnir að fá alveg „et par exemplar“, dæmi um hvernig Framsfl. hefur lagst undir dregilinn hjá sjálfstæðismönnum og frjálshyggjustefnu þeirra. Það er ekki eitt heldur allt, líka framleiðsla á brennivíni, sem einkaframtakið skal hafa með höndum. Formaður Framsfl. sem og hæstv. dómsmrh. Jón Helgason, sem hefur haft nokkuð sérstaka stöðu í brennivínsmálunum eins og allir vita, láta þetta auðvitað yfir sig ganga. Að vísu er það upplýst hér af hv. 3. þm. Norðurl. e. að það geri hæstv. dómsmrh. nauðugur. Um hvers konar nauðgun þar hefur verið að ræða veit ég ekki, herra forseti, en ég hef ekki annað fyrir mér í því en orð hv. 3. þm. Norðurl. e. þar sem hæstv. dómsmrh. er fjarstaddur.

Herra forseti. Ég tel mig hins vegar hafa komið mínum viðvörunum á framfæri og ég ítreka þær. Ég er ekki viss um að menn hafi alveg áttað sig á því allir hvaða breytingar eru hér að eiga sér stað. Mér finnst þetta frv. tiltölulega vanhugsað og vanbúið og öll málsmeðferðin ekki traustvekjandi. Niðurstaða mín er sú að það sé verið að stíga hér skref sem gæti orðið fyrsta skrefið af mörgum til að búa til í landinu það sem ég vil kalla áfengisauðvald, brennivínsauðvald. Við þekkjum það frá nálægum löndum, herra forseti, hvernig eðli þess er. Það er til að mynda talið að fáir ef nokkrir aðilar í heiminum, sem eru í einni tiltekinni framleiðslugrein, auglýsi meir sína vöru en hið alþjóðlega brennivínsauðvald. Þar er um gífurlegar fjárhæðir að ræða sem renna í auglýsingar og í ýmsa aðra farvegi til að greiða fyrir útbreiðslu og sölu á þessum varningi, til að kippa úr veginum lagahindrunum og til að halda öllum tilraunum stjórnvalda til að draga úr neyslu áfengis í lágmarki. Þetta er viðurkennd staðreynd. Það er hugsanlega verið að stíga hér fyrsta skrefið af mörgum í sömu átt með þessum breytingum, að búa til íslenskt áfengis- eða brennivínsauðvald. Sú skemmtilega staða kom upp í Sjálfstfl. að hæstv. fyrrv. fjmrh., hæstv. núv. iðnrh. Albert Guðmundsson, var allt í einu orðinn yfirmaður Áfengisverslunar ríkisins, en hann hefur sem kunnugt er umboð fyrir einhverjar víntegundir frá Frakklandi og jafnvel fleiri löndum og hefur þar af leiðandi af því persónulegan ábata að flytja það inn í landið. Þegar sú skemmtilega staða var komin upp að hann var einnig orðinn yfirmaður Áfengisverslunar ríkisins var ekki frítt við að það kæmi ofurlítill litur í vanga á einstöku sjálfstæðismanni sem gat út af fyrir sig viðurkennt í einkasamtölum að þetta væri svolítið óheppilegt fyrirkomulag. En þetta virðist ekki hafa kennt þeim sjálfstæðismönnum mikið og þeir sjá ekki ástæðu til að staldra við þessa reynslu heldur halda áfram og taka nýtt skref undir forustu formannsins, hv. 1. þm. Suðurl., hæstv. fjmrh. Það er líka einkar athyglisvert. Þar með er orðinn mjög athyglisverður þáttur beggja stjórnarflokkanna í þessu máli, herra forseti, og ég er ekki viss um að þeir séu alveg búnir að bíta úr nálinni með það.

En ég læt þá lokið máli mínu, herra forseti, og mun að sjálfsögðu, sem vonandi er ljóst eftir ræðuhöld mín hér, greiða atkvæði gegn þessu frv. við 3. umr.

Umr. (atkvgr.) frestað.