22.04.1986
Sameinað þing: 78. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4373 í B-deild Alþingistíðinda. (4134)
319. mál, dómshús fyrir Hæstarétt Íslands
Frsm. (Ólafur Þ. Þórðarson):
Herra forseti. Allshn. hefur fjallað um till. til þál. sem er 319. mál. Með leyfi forseta vil ég fá að lesa hér nál.:
„Nefndin hefur fjallað um till. til þál. um dómhús fyrir Hæstarétt Íslands. Nefndarmenn eru sammála um að mæla með samþykkt till. með breytingum sem nefndin flytur á sérstöku þskj.
Fjarverandi við afgreiðslu málsins var Eggert Haukdal.“
Brtt. er um að tillgr. orðist svo: „Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að kanna hvort Safnahúsið við Hverfisgötu í Reykjavík geti hentað Hæstarétti Íslands sem dómhús ef starfsemi Landsbókasafns og Þjóðskjalasafns flyst úr húsinu.“
Sú breyting er gerð á þessari till. að við leggjum til að þetta verði kannað, en till. var áður fortakslaust á þann veg að ríkisstj. var falið að gera Safnahúsið við Hverfisgötu í Reykjavík að dómhúsi fyrir Hæstarétt.
Það liggur fyrir að þetta hús er friðað og því takmarkaðir möguleikar á því að breyta því á nokkurn hátt. Okkur þótti eðlilegt að það yrði kannað hvort það mundi henta. En að sjálfsögðu verður það að koma í ljós að þeirri könnun lokinni hvort hér er um raunhæfan valkost að ræða.
Svavar Gestsson: Herra forseti. Ég er þeirrar skoðunar að í Safnahúsinu eigi að vera söfn. Um það var tekin ákvörðun fyrir nokkrum áratugum og ég tel að svo eigi að vera áfram. Ég tel enga ástæðu til að vera að kanna það sérstaklega hvort Hæstiréttur á að fara inn í þetta hús eða ekki. Ég ætla því að vera á móti till. nefndarinnar. Ég vil skýra frá því hér í heyranda hljóði.
Umr. (atkvgr.) frestað.