22.04.1986
Sameinað þing: 78. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4375 í B-deild Alþingistíðinda. (4140)

56. mál, svört atvinnustarfsemi

Stefán Guðmundsson:

Herra forseti. Ég get sætt mig við þessa afgreiðslu nefndarinnar á till. okkar þm. Framsfl. um svarta atvinnustarfsemi, ekki síst eftir að sú skýrsla hefur komið fram sem frsm. vitnaði til. En í skýrslu starfshópsins segir m.a. að velta íslenska neðanjarðarkerfisins sé 5,5-7,5 milljarðar kr. á árinu 1985. Skatttekjur, sem ríkissjóður og bæjarfélög urðu af vegna þessa, eru taldar vera um 2,5-3,5 milljarðar kr. á sama ári.

Á sama tíma var innheimta allra beinna skatta ríkissjóðs rúmlega 3,3 milljarðar kr. og starfshópurinn segir m.a. í skýrslu sinni: „Skattsvik eru hins vegar aðeins hluti af þeirri efnahagslegu starfsemi sem fram fer utan hins skráða hagkerfis. Hér sést það best hversu mikið er í húfi að koma í veg fyrir þessa þróun.“

Herra forseti. Ég treysti því að ríkisstj. stingi þessari þáltill. ekki undir stól heldur taki drjúglega til hendi og komi í veg fyrir þessa neðanjarðarstarfsemi og stöðvi þann hulduher sem að baki þessu er.

Umr. (atkvgr.) frestað.