22.04.1986
Sameinað þing: 78. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4376 í B-deild Alþingistíðinda. (4142)

90. mál, langtímaáætlun um jarðgangagerð

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Ég er ósammála þeirri niðurstöðu sem hv. atvmn. Sþ. kemst að varðandi þessa till. og ég verð að lýsa óánægju minni með niðurstöðuna og vinnubrögð nefndarinnar þar að lútandi. Ég tel að þessi niðurstaða og þessi vinnubrögð séu ekki í samræmi við þær umræður sem orðið hafa um þessa tillögu og ekki heldur í samræmi við þá staðreynd að þessa tillögu flytja þm. úr a.m.k. fjórum flokkum á hv. Alþingi. Ég tel að þetta sé heldur ekki í samræmi við það að á þeim tveimur þingum sem þessi till. hefur verið hér til umfjöllunar hefur hún í umræðum fengið jákvæðar undirtektir nokkurra hv. þm. til viðbótar þannig að sameiginlega hygg ég að finna megi a.m.k. jákvæða afstöðu tíu hv. þm. sem nú eiga sæti á Alþingi. Þar af leiðandi held ég að nokkuð þurfi að koma til, þegar það liggur fyrir að þetta mikill stuðningur þm. úr mismunandi flokkum liggur fyrir tilteknu þingmáli, að menn gefist algerlega upp við það a.m.k. að skoða þá möguleika að laga þannig til viðkomandi tillögugrein að menn geti orðið um hana sammála. Það hefur hv. atvmn. ekki reynt, eins og raun ber vitni. Hún leggur einfaldlega til að till. verði kistulögð á þann hátt sem hér er gjarnan gert með því að vísa henni til hæstv. ríkisstj .

Ég hef kynnt mér það, m.a. með lestri fundargerða viðkomandi hv. nefndar, hvernig hún hafi hagað störfum sínum og ég verð að segja alveg eins og er, herra forseti, að ég hefði kosið að hv. þingnefnd hefði treyst sér til að leggja svolítið meira af mörkum í þessum efnum og leggja ofurlítið meira á sig.

Ég vil einnig mótmæla þeim niðurstöðum sem hv. nefnd kemst að og rökstyður með umsögnum sem nefndinni hafi borist. Ég hef farið yfir þessar umsagnir, herra forseti, og þar kemur í ljós að af sex umsögnum sem nefndinni hafa borist, sex eða sjö umsögnum, eru einar fimm tvímælalaust jákvæðar. Ein hygg ég að megi segja að sé tiltölulega hlutlaus en þó jákvæð og ein tiltölulega hlutlaus en þó e.t.v. frekar neikvæð. Það er eina umsögnin sem virkilega er eitthvað gert með í hv. nefnd og nál. að verulegu leyti byggt á þeirri umsögn. Þar er á ferðinni það sem ég vil kalla, herra forseti, ósköp eðlilegt nöldur hagsýslunnar vegna þess að henni er yfirleitt illa við mál sem þýða útgjöld. Hún er að berjast við það, þessi aumingja hagsýslustofnun, að koma saman fjárlögum ár eftir ár og hefur það sem vinnureglu að nöldra yfir þeim málum sem gætu hugsanlega þýtt aukin útgjöld á fjárlögum. Ég geri því, herra forseti, ekki allt of mikið með það þó að hv. nefnd fari svona með þessa umsögn.

Ég vil nefna að Orkustofnun skilar umsögn sem er fremst í hefti sem ég hef og ég mundi segja að sú umsögn væri hlutlaus en þó jákvæð vegna þess að Orkustofnun býður fram í lok á svari sínu alla sína aðstoð við þessa vinnu ef af henni verði, en tekur að öðru leyti ekki afstöðu, enda segir í umsögninni að það sé ekki beint hlutverk Orkustofnunar að fjalla um framkvæmdir til vegagerðar.

Síðan kemur að umsögn hagsýslunnar þar sem því er haldið fram að jarðgangagerð sé mjög dýr, rétt eins og hagsýslustofnun hafi fundið á það algildan mælikvarða hvað sé dýrt og hvað sé ekki dýrt í þjóðfélaginu. Ég vissi ekki að til væri slíkur mælikvarði, a.m.k. ekki nema þá að honum fylgdu einhverjar útskýringar á þessum algilda mælikvarða, þessum skala hagsýslunnar um hvað er dýrt og hvað er ekki dýrt í samfélaginu. En þetta er niðurstaða hagsýslunnar og nefndin hefur tekið hana trúanlega og gerir ekki gangskör að því að afla sér upplýsinga um hvað „dýrt“ er dýrt, en það liggur þó fyrir að mjög mismunandi hugmyndir eru uppi um það.

Síðan kemur að umsögn Fjórðungssambands Vestfirðinga sem er mjög jákvæð og ef það skyldu vera hér einhverjir hv. þm. úr Vestfjarðakjördæmi ætla ég að leyfa þeim að heyra umsögn fjórðungssambands þeirra fjórðungs. Hún er svo, með leyfi forseta:

„Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga fagnar fyrrgreindri þáltill. og leggur áherslu á að hún verði samþykkt fyrir þinglok.“

Og síðast kemur: „Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga leggur ríka áherslu á að framangreind þáltill. verði samþykkt fyrir þinglok.“

Síðan kemur að Verkfræðingafélagi Íslands og þar er um jákvæða umsögn að ræða. Með leyfi forseta segir þar m.a.:

„Stjórn Verkfræðingafélags Íslands telur að hér sé um að ræða merka tillögu og getur tekið undir flest sem í henni er. Þó eru örfá atriði sem við viljum leggja áherslu á.“

Þá koma ákveðnar skýringar sem ég tel tiltölulega eðlilegar og síðan koma uppástungur í framhaldi af tillgr., en þar segir að ríkisstj. skuli láta Vegagerð ríkisins í samstarfi við aðra sérfróða aðila gera langtímaáætlun o.s.frv. Verkfræðingafélagið kemur með uppástungu um til hvaða aðila skuli þarna leita. Þetta er tvímælalaust jákvæð umsögn.

Fjórðungssamband Norðlendinga sendir frá sér 3. apríl s.l. mjög jákvæða umsögn og leggur til að till. fái jákvæða afgreiðslu á Alþingi.

Þá kem ég að Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, þar sem ekki er mikið um fjallgarða og menn ættu væntanlega ekki að hafa neinn sérstakan áhuga á því þar, talsmenn þeirra sveitarfélaga, að leggja í mikil útgjöld til jarðgangagerðar út af fyrir sig þó ég sé ekki að gera því skóna að þeir ágætu menn geti ekki haft skilning á þýðingu þessa verkefnis, enda segja þeir, með leyfi forseta:

„Stjórn SSH telur að æskilegt sé að allar vegaframkvæmdir, þar með talin jarðgangagerð, byggist á arðsemis- og hagkvæmnisjónarmiðum. Nauðsynlegt er að hinu takmarkaða vegafé landsmanna sé varið eins skynsamlega og hægt sé og allar áætlanir sem stuðla að því séu jákvæðar.“

Þar með tel ég að Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu skili jákvæðri umsögn.

Að síðustu vil ég tvímælalaust halda því fram að umsögn Vegagerðar ríkisins um till. sé jákvæð, en þar segir m.a.:

„Vegagerð ríkisins er sammála þeirri meginhugmynd sem kemur fram í till., þ.e. að gerð skuli langtímaáætlun um jarðgangagerð sem falli að og verði hluti langtímaáætlunar í vegagerð. Ljóst má vera að nokkur byggðarlög á landinu búa við slíkar aðstæður að þau verða ekki tengd við vegakerfi landsins og/eða nærliggjandi byggðarlög með fullnægjandi hætti til frambúðar nema til komi jarðgöng.“

Þá tel ég mig hafa sýnt fram á með þessum upplestri, herra forseti, að af sjö umsögnum sem um tillöguna bárust hafi fimm verið afdráttarlaust jákvæðar, ein hlutlaus en fremur jákvæð og ein hlutlaus en fremur neikvæð. Ég held að niðurstaða hv. atvmn. verði ekki rökstudd með tilvísan til umsagna sem nefndinni hafa borist.

Ég vil enn fremur segja, herra forseti, að ég skil ekki að menn skuli ekki hafa á því áhuga að láta slíka áætlun og slíka rannsókn fara fram. Ég hefði sætt mig mjög vel við það ef niðurstaða nefndarinnar eða meiri hl. hennar hefði orðið sú að ástæða væri til að breyta tillgr., m.a. í þá veru að stytta þessa athugun og minnka umfang hennar. Þó að efnislega hefði ég talið skynsamlegt að standa öðruvísi að málum hefði ég látið það óátalið og skilið ef menn hefðuð viljað reyna að afmarka könnunina meira. En að falla alveg frá henni er mér illskiljanlegt.

Ég vil enn fremur rifja upp, herra forseti, að hæstv. samgrh. hafði um það orð á fundum sínum s.l. sumar úti á landi að hann væri mjög áhugasamur um að láta slíka vinnu fara fram. Mætti ábyggilega fletta upp á blöðum og vitna til fjölmiðlafrétta af fundum hæstv. ráðh. frá s.l. sumri þar sem hann hélt mjög á loft nauðsyn þess að láta fara fram vinnu og gera langtímaáætlun um jarðgangagerð. Hæstv. ráðh. gleymdist að vísu einhvers staðar á þessum fundum að geta þess að þetta mál hefði verið til umfjöllunar á Alþingi og nokkrum hv. þm. hefði dottið þetta í hug, jafnvel á undan honum, en það má kyrrt liggja okkar á milli. Aðalatriðið er að hæstv. samgrh. hefur lýst sig mjög áhugasaman um þetta tiltekna viðfangsefni. Ekki er niðurstaða nefndarinnar í fullkomnu samræmi við þessa afstöðu hæstv. samgrh.

Ég hef gert á því nokkra könnun, herra forseti, hvaða þýðingu þau byggðarlög nokkur, sem hér eru sérstaklega til umfjöllunar, hafa fyrir íslenska þjóðarbúið. Hér er t.a.m. um að ræða það svæði á Vestfjörðum þar sem um 2/3 hlutar íbúa Vestfjarða búa, en þar eru ein 5% af íslensku þjóðinni eins og menn mættu muna. Þessi fáeinu prósent Íslendinga leggja þjóðarbúinu til um 13% alls sjávarafla landsmanna. Ef við gefum okkur að þessi afli dreifist nokkurn veginn jafnt á íbúa Vestfjarða ættu að vera nálægt 2/3 af þessu verðmæti á þessu svæði, þ.e. við Ísafjarðardjúp, Súgandafjörð og Önundarfjörð og nærlæg sveitarfélög. Það þýðir að þetta svæði eitt, sem með tveimur meðaljarðgöngum mætti gera að einni atvinnusókn, framleiðir talsvert á þriðja milljarð króna til útflutnings á hverju einasta ári. M.ö.o.: ef þjóðarbúið gæti séð af eins og tæpum helming af þeirri upphæð í eitt einasta ár mætti gera þessi jarðgöng og tengja saman rúmlega 2/3 Vestfirðinga þannig að það væri örskotsstund, kannske 20 til 30 mínútna akstur á milli flestra þessara byggðarlaga. Halda menn þá að það sé ekki eftir nokkru að sækjast?

Ég hef einnig gert á því nokkra athugun, herra forseti, hver rekstrarkostnaður þeirra vega er í dag sem þessi jarðgöng mundu leysa af hólmi, þ.e. tvenn meðallöng jarðgöng til að tengja þessi byggðarlög. Hann er fast að 10 millj. kr. á hverju einasta ári, rekstrarkostnaður fjallvega sem slík jarðgöng mundu leysa af hólmi. Þar með er rekstrarkostnaðurinn einn orðinn álitleg fjárhæð til að afskrifa t.d. lántökur, ef út í þær væri farið, til að koma slíku verki af stað.

Ég verð enn að segja að mér finnst hér hafa verið heldur slælega unnið. Ekki einu sinni reyndi hv. atvmn. að kynna sér hversu mikið væri nú í húfi fyrir þessi byggðarlög, hversu þýðingarmikil þau væru í þjóðarframleiðslunni og hversu óhagkvæmt væri að reka þá vegi sem göngin eiga að leysa af hólmi.

Ólafsfirðingar framleiða til útflutnings á hverju einasta ári á núvirði einhvers staðar á bilinu 550 til 600 millj. kr. Þau jarðgöng sem verið er að tala um að leysi veginn fyrir Ólafsfjarðarmúla af hólmi gætu kostað samkvæmt mjög varfærnum áætlunum Vegagerðarinnar rúmar 400 millj. Ég tel sennilegra, en það er mín skoðun og skal tekið fram, að fá mætti þennan kostnað niður undir 320-350 millj. með því að nýta sér þá ýtrustu hagkvæmni sem nú virðist í boði í þessum efnum. Með sömu rökum má segja að jafnvel rétt rúmur helmingur af útflutningsframleiðslu Ólafsfirðinga á hverju einasta ári dygði til að koma þessu gati í gegnum fjöllin og tengja þá við afganginn af Eyjafjarðarsvæðinu með eðlilegum hætti.

Vegna þess að menn sjá jafnan drauga þegar einstakir þm. tala um jarðgöng, það virðist vera löggild skoðun hjá hluta hv. þm. að það sé nánast guðlast að taka sér í munn að íslenska þjóðin hafi og muni hafa efni á því að beita þessari aðferð í samgöngumálum eins og flestar aðrar þjóðir þó gera sem búa við hliðstæðar aðstæður, þá hlýt ég að minna hv. þm. á að það er hvorki nýtt né mun verða nýtt í framtíðinni að einstök mannvirki í íslenska samgöngukerfinu kosti nokkrar upphæðir. Ég hef látið framreikna fyrir mig, herra forseti, nokkur stórátök í samgöngumálum þjóðarinnar, t.a.m. Borgarfjarðarbrúna. Hún er á núvirði yfir 700 millj. kr. Skeiðarársandurinn einn er á áttunda hundrað millj. kr. Ég minni á t.d. nýtt mannvirki sem nú er verið að hleypa af stokkunum og tengir saman byggðarlög sem að vísu hafa ágætisvegasamgöngur í dag, en nokkuð krókóttar, þ.e. Þorlákshöfn, Stokkseyri og Eyrarbakki. Þar er verið að hleypa af stokkunum brú yfir Ölfusárósa, hinu þarfasta mannvirki, og taki nú enginn mig svo sem ég sé andvígur því, en þessi brú, sem kemur sem hægðarauki í samgöngumálum ákveðins byggðarlags, kostar fast að 200 millj. á núvirði þannig að hún er kannske hálf þessi göng fyrir Ólafsfjörð. Ég verð að segja alveg eins og er að menn geta ekki einu sinni fullyrt að slíkum stórátökum sé haldið við hringveginn því þarna er um að ræða mannvirki sem kemur utan hringvegarins og kostar þessa upphæð. Menn geta því ekki sagt með réttu, herra forseti, að það sé eitthvert guðlast að líta til þessa kosts í samgöngumálum.

Ég gæti farið hliðstætt fyrir Austfirðina og lesið upp fyrir hv. þm. hversu þýðingarmikið það svæði á Austfjörðunum, miðfirðirnir og Hérað, er í raun og veru fyrir þjóðarbúið og hversu stórt atvinnusvæði þar gæti orðið til með þrennum stuttum jarðgöngum, en þá mætti tengja Seyðisfjörð, Mjóafjörð, Norðfjörð og Hérað og síðan áfram ef fara gerir og búa til eina atvinnusókn þar sem 35 til 50 mínútna akstur væri á milli allra þessara staða og tiltölulega þægilegt að aka til vinnu sinnar, svipað og fyrir Breiðhyltinga að fara út á Seltjarnarnes eða eitthvað svoleiðis.

Herra forseti. Þessu vildi ég koma á framfæri m.a. og gæti ég út af fyrir sig haft nokkru lengra mál um þetta því að ég held að það sé mikil blindni ef menn ekki vilja horfa á hversu gífurlega þýðingarmikið það gæti orðið fyrir viðkomandi svæði. Ég vil nefna Vestfirðina aftur alveg sérstaklega. Til marks um það, herra forseti, hversu mikinn áhuga menn þar um slóðir hafa á þessu máli, og nú vil ég minna hv. þm. á að ég er ekki í framboði á Vestfjörðum þó ég segi þetta, (ÓÞÞ: Ekki framboði?) - Ég er ekki kosinn á þing fyrir Vestfirði, hv. skrifari. (ÓÞÞ: Það er annað mál.) - að Fjórðungssamband Vestfirðinga og aðilar á Vestfjörðum hafa þegar lagt af mörkum umtalsverðar fjárhæðir til að láta kanna þessa kosti. Þeir reiddu t.d. fram umtalsvert fé til að flýta áfangaskýrslu Vegagerðar ríkisins um jarðfræðilega könnun á viðkomandi svæði og þeir hyggjast nú af eigin rammleik láta gera vandaðar kostnaðaráætlanir fyrir þessa hugsanlegu lausn í samgöngumálum. Það gera menn væntanlega ekki út í bláinn og ekki að gamni sínu og ekki vegna þess að þeir telji þetta einhverja goðgá heldur vegna þess að það fólk sem þar býr og þar vill búa hefur trú á því að þetta sé ein sú lausn sem að mestu liði gæti komið þar í lífsbaráttunni og ég er sammála því.

Vegna þess að ég hef það á tilfinningunni að sumir séu andvígir þessari till. af því að þeir sjái fyrir sér gífurlega eyðslu fjármuna úr íslenska ríkiskassanum á morgun eða hinn daginn vil ég biðja þá menn að lesa till. og grg. Mér hefði þótt vænt um ef hv. frsm. atvmn. hefði t.d. lesið upp að það segir skýrt og skilmerkilega í tillgr. sjálfri á alveg gegnumtærri íslensku sem ég hélt að allir gætu skilið, með leyfi forseta:

„Þá skal áætlunin taka mið af þeim framkvæmdahraða sem hagkvæmastur er í jarðgangagerð innan þeirra marka sem framlög til vegamála setja hverju sinni.“

Að sjálfsögðu er ekki verið að binda hér niður einhverja framkvæmdaáætlun né framkvæmdahraða úr samhengi við framlög til vegamála. Hverjum hefur dottið slíkt í hug? Það segir í tillgr. á mörgum stöðum að einmitt sé mjög nauðsynlegt að fá fram hagkvæmnismat, en að sjálfsögðu þurfi síðan að líta til þeirra áforma sem stjórnvöld hafa og getu til framkvæmda á sviði vegamála hverju sinni.

Herra forseti. Af því að tíminn mun vera naumt skammtaður til fundahalda þessa sólarhringa sem eftir eru af þinghaldinu held ég að ég stytti mál mitt og hlaupi yfir ýmislegt sem ég hefði gjarnan viljað koma á framfæri og lýtur t.a.m. að vinnubrögðum. Ég hefði getað haldið hér nokkra ræðu um að ég hef kynnt mér það og er þeirrar skoðunar að kostnaður í þessari tilteknu aðferð í samgöngumálum er á niðurleið. Um það liggja fyrir tölur og menn frá Vegagerð ríkisins hafa iðulega viðurkennt fyrir mér að þeirra mat sé mjög varfærið. Þeir taka reyndar fram í sinni umsögn einhvers staðar að til séu tölur allt að og jafnvel meira en helmingi lægri en þær sem þeir nefna þó sem sínar kostnaðaráætlanir.

Það var einhvern tíma ónefndur þingmaður, herra forseti, sem hélt ræðu á virðulegu Alþingi þegar til umræðu voru flugvélakaup einnar stofnunar í þjóðfélaginu, en þar vinna margir flugmenn og þykjast hafa nokkra þekkingu á flugrekstri. Hv. þm. sagði engu að síður að hann héldi því fram að þessir ágætu menn hefðu ekki hundsvit á flugvélum. Nú dettur mér ekki í hug að hafa jafndónalegt orðbragð um hv. nefndarmenn í atvmn. Þeir hafa örugglega talsvert vit á jarðgöngum, en ég er haldinn þeirri meinloku að ég hafi það líka og þess vegna vil ég gjarnan fá rök. Ég vil gjarnan fá t.d. rök fyrir því hvað það er sem menn óttast, hvað það er sem væri skaðlegt við að láta þessa úttekt fara fram í framhaldi af samþykkt þessarar till. Telja menn að það væri hrein sóun á peningum að kynna sér hversu hagkvæm þessi lausn væri, hvenær hún ætti að koma inn í sem eðlilegur hluti af okkar framkvæmdum í vegamálum o.s.frv.?

Ég harma út af fyrir sig að nefndin t.a.m. skyldi ekki taka einn einasta mann til viðræðna um þetta mál. Ég hefði ekki talið þeim tíma hv. atvmn., af því að hún heitir því nafni, illa varið þó t.d. sérfræðingar Vegagerðar og Orkustofnunar, sem ásamt með öðrum hafa kynnt sér framkvæmd þessara mála í Færeyjum og verið þar á ferð ekki fyrir löngu, hefðu mætt á einn nefndarfund og sagt nefndarmönnum undan og ofan af því. Frændur okkar Færeyingar bora, eins og kunnugt er, allt upp í kílómetra á hverju ári og jafnvel meira og eru að tengja mörg byggðarlög, mjög fámenn, við samgöngunet Færeyja og telja þeim fjármunum greinilega vel varið því þeir eru búnir að vera að þessu í mörg, mörg ár.

Herra forseti. Ég er sannfærður um það, og það má gjarnan fara inn í þingtíðindin á því herrans ári 1986, að þau okkar sem verður sæmilega langra lífdaga auðið muni upplifa það og sjá að ákveðin byggðarlög og ákveðin svæði á Íslandi komast í fullnægjandi og góðar samgöngur með jarðgöngum. Ég á mér sjálfur þann draum að ég eigi eftir að fara á einhvers konar farartæki, hvernig sem þau munu líta út einhvern tíma upp úr aldamótunum, í gegnum svona göng og aka á milli fjarða bæði fyrir austan og vestan og fara þá kannske á kortéri undir erfiðan og langan fjallveg sem menn hafa barist um með illu yfir á undanförnum árum. Þá er ég alveg viss um að afstaða sumra hv. þm. í þessu efni nú, sem kemur fram í þessari afstöðu atvmn. og reyndar hefur aðeins bryddað á víðar, muni þykja giska jafnbrosleg, herra forseti, og afstaða ákveðinna bænda sem tóku sig upp og riðu til höfuðstaðarins til að mótmæla símanum, sáu mikla hættu í því fólgna að menn færu að hleypa þessum vágesti inn í landið.

Ég held að það eigi eftir að verða mjög broslegt í sögunni í framtíðinni að menn skyldu jafnvel á árinu 1986 hafa uppi miklar efasemdir um það og deila um að í fjöllóttu landi með byggðarlög eins og Vestfirði og Austfirði hlyti ekki að koma að því að menn leystu samgöngumál á þann eina máta sem skynsamlegur er, þ.e. með því að fara undir fjöllin og losna þar af leiðandi við snjó og vandræði og allt sem af því stafar að hafa vegina þar sem þeir eru í dag á þessum svæðum.

En ég sleppi því að fara út í það sem kannske ætti þó að vera aðalatriðið í umfjöllun okkar um þessi mál, þó það sé viðkvæmt mál og út af fyrir sig ofurlítið erfitt að ræða, en það er sú mikla slysahætta og það gífurlega óöryggi og þeir erfiðleikar sem því eru samfara í þessum byggðarlögum að búa allt árið um kring við þá yfirþyrmandi tilhugsun að þeir sjálfir eða einhverjir þeim nákomnir gætu farið út af veginum og horfið til feðra sinna vegna þess hvernig ástandið er. Nú eru þm. það vel reistir, eins og nóbelsskáldið sagði einhvern tíma, að þeir vita sjálfsagt hvernig það er að fara fyrir Ólafsfjarðarmúlann, t.a.m. í hálku og við erfið skilyrði að vetrarlagi þegar naumir snjómoksturspeningar hafa eingöngu dugað til að stinga örmjóa slóð í gegnum skaflana á blábrúninni þannig að hjólfarið eitt er eftir út af og þar eru nokkur hundruð metrar niður í sjó eins og menn vita.

Það liggur mjög þungt á því fólki sem býr í þessum byggðarlögum og þarf og neyðist til og á engan annan valkost en að aka um þessa vegi næstum því að segja hvernig sem aðstæður þar eru. Þó að þetta verði auðvitað aldrei reiknað út í krónum og aurum, herra forseti, enda stendur það ekki til, er þetta mjög stór hluti þessa máls og ég læt lokið umfjöllun minni með því að minna á þetta.