22.04.1986
Sameinað þing: 80. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4404 í B-deild Alþingistíðinda. (4162)

307. mál, fríverslunarsamningur við Bandaríkin

Frsm. (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Herra forseti. Hv. utanrmn. hefur haft mál þetta til umfjöllunar og kvatt á fund sinn þá Þórhall Ásgeirsson ráðuneytisstjóra, Ólaf Davíðsson, framkvæmdastjóra Félags ísl. iðnrekenda, og Árna Árnason, framkvæmdastjóra Verslunarráðs Íslands, til ráðuneytis.

Nefndarmenn mæla með samþykkt till. lítið eitt breyttrar, en þá breytingu er að finna á þskj. 1010 og orðast hún svo, með leyfi forseta:

"Tillgr. orðist svo:

Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að hraða svo sem föng eru á könnun á gerð fríverslunarsamnings við Bandaríkin með hliðsjón af því hver yrði viðskiptalegur hagnaður af slíkum samningi fyrir íslenska atvinnuvegi og útflutningsstarfsemi.“