22.04.1986
Sameinað þing: 80. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4405 í B-deild Alþingistíðinda. (4166)

22. mál, listskreyting í Hallgrímskirkju

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ekki skal ég gera meiri háttar mál úr því að hv. þm. Árni Johnsen komi með að mér skilst þskj., en síðbúið er það. Ég upplýsi að hann á sæti í þeirri nefnd sem um þetta mál hefur fjallað. Hann var ekki viðstaddur afgreiðslu málsins og maður skyldi halda að hefði honum legið mikið á hjarta að gera við það athugasemdir hefði unnist til þess tími í allan vetur. En svo vill til að hv. þm. hefur ekki sótt nema einn fund nefndarinnar. Ég hlýt því að spyrja, herra forseti, nú þegar við höfum setið hér og lagt nótt við dag að greiða fyrir málum ríkisstj. og þeim málum sem hv. þm. hafa flutt hvort til of mikils sé mælst að forseti biðji hv. þm. að flýta því að gengið verði frá þskj. þannig að málið dagi ekki uppi á þessum síðasta fundi í Sþ. Ég vænti þess að forseti reynist okkur í allshn. hjálplegur við að málið ekki tefjist.