11.11.1985
Neðri deild: 14. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 505 í B-deild Alþingistíðinda. (418)

65. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Frsm. (Friðrik Sophusson):

Herra forseti. Hv. félmn. Nd. hefur fjallað um þetta mál og leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt. Hv. þm. Stefán Valgeirsson var fjarstaddur afgreiðslu málsins, hafði reyndar veikindaforföll.

Málið er einfalt. Landshlutasamtökum hefur fjölgað og þess vegna er lagt til að ráði Sambands ísl. sveitarfélaga að hærri hluti en nú af jöfnunarsjóðsframlagi gangi til landshlutasamtakanna en áður var.