22.04.1986
Sameinað þing: 80. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4437 í B-deild Alþingistíðinda. (4196)
Úthlutun raðsmíðaskipa
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Samstarfsaðilar í sambandi við tilboð í raðsmíðaskip, þeir á Kópaskeri og þeir á Svalbarðsströnd, sóttu, báðir þessir aðilar, um samtals 12 millj. til Byggðasjóðs til að kaupa þessi skip. Fjölmiðlar hafa haft eftir formanni stjórnar Byggðasjóðs, hv. þm. Stefáni Guðmundssyni, að hann hafi borið fram tillögu um það í stjórn Byggðasjóðs að ofangreindar lánsbeiðnir yrðu samþykktar. Það varð því mörgum undrunarefni þegar þessi tillaga var felld með 4 atkvæðum gegn 3. Því vil ég spyrja hv. þm. Stefán Guðmundsson: Var þessi lánsbeiðni þeirra á Kópaskeri og Svalbarðsströnd hærri eða afbrigðilegri á einhvern hátt en t.d. það sem gert var af hálfu Byggðasjóðs vegna skipakaupa aðila á Akranesi, Ólafsvík, Bíldudal og Húsavík? Ég óska eftir að tilgreint sé hver fyrirgreiðsla Byggðasjóðs var í hverju tilviki. Björn Jósef Arnviðarson á Akureyri, sem er lögfræðingur þeirra sem stóðu að tilboði þeirra á Kópaskeri, spurði ég eftirfarandi spurninga og ég lét hann vita að ég mundi nota svör hans við þessa umræðu. - Ég spurði:
Telur þú ábyrgð Samvinnubankans fyrir Útgerðarfélag Kópaskers ekki fullnægjandi, eins og hún var í upphaflegu formi, miðað við venjulega viðskiptahætti?
Björn sagði: Jú, fullkomlega. Ég get ekki séð að hún geti verið betri.
Við ræddum þetta frekar og vorum sammála um að í þessu skilyrði Samvinnubankans fælist ekki annað en það að ef svo illa færi, sem litlar líkur væru fyrir, að kaupendur gætu ekki innt umsamda greiðslu af hendi og bankinn yrði að ganga að skipinu, væri það hægt án dómsúrskurðar. Annað var það ekki.
Ég spurði Björn Jósef enn fremur: Veist þú dæmi þess að sett séu þau skilyrði af byggingaraðila að hann fái ráðstöfunarrétt á hinni seldu eign ef bankatrygging er til staðar fyrir umsamdri greiðslu? Björn sagði: Ég veit engin dæmi þess.
Það hefur verið mikið rætt um þessi mál og því er nauðsynlegt að ræða þau meira en hægt er að gera hér á þremur mínútum.
Framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri setti það skilyrði að ef skipið gengi til baka fengi hann aftur að ráðstafa skipinu. Ég vil því spyrja hæstv. fjmrh.: Var ekki óþarfi og raunar tilgangslaust að krefja Útgerðarfélag Kópaskers um bankaábyrgð fyrst sett var það skilyrði af hendi söluaðila að skipið gengi aftur til þeirra ef greiðslur ekki standast þar sem allar greiðslur átti að inna af hendi áður en skipið var afhent?
Annað skilyrði sem var sett samkvæmt því skeyti sem var vitnað til, þetta skeyti kom mánudagskvöldið 14. apríl og átti að svara því fyrir hádegi þann 16, var að sett yrði bankatrygging eða önnur sambærileg trygging fyrir því að eigið fé útgerðarfélagsins væri aukið um 4-5 millj. á ári næstu fimm árin þar sem ætla má að rekstur skipsins geti ekki staðið undir greiðslu vaxta og stofnlána fyrstu árin. Kröfur þessar voru ekki settar í sambandi við Særúnu á Blönduósi áður en þeir skrifuðu undir samninginn.
Ég vil spyrja hæstv. forsrh.: Telur hann að staðið hafi verið að þessu máli á eðlilegan hátt? Gerir hæstv. ráðh. engar athugasemdir við vinnubrögð og niðurstöður þessa máls?
Ég spyr hæstv. sjútvrh. og hæstv. iðnrh. sem áttu fulltrúa í embættismannanefndinni: Samþykkti embættismannanefndin þá niðurstöðu sem við blasir? Gera þeir engar athugasemdir við framgangsmáta þessa máls?