17.10.1985
Sameinað þing: 4. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 71 í B-deild Alþingistíðinda. (42)
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana
Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Góðir áheyrendur. Í umræðunum hér í kvöld hefur það verið almennt álit að við Íslendingar stæðum frammi fyrir verulegum vanda eins og svo oft áður. Talsmenn flokkanna hafa talið að margt væri hægt að gera til varnar og sóknar og almenn skoðun stjórnarandstöðunnar virðist sú að lítið mál væri að stórbæta kjör fólksins í landinu. En hver er hin raunverulega staða og hvaða skorður setur hún okkur?
Í fyrsta lagi eru erlendar skuldir mjög miklar. Mögulegt er að auka þær enn frekar þannig að við höfum meira ráðstöfunarfé milli handanna nú á næstunni. En er skynsamlegt að hefta þjóðina í frekari skuldafjötra? Allir sem hugsa eitthvað um framtíðina svara þessari spurningu neitandi.
Í öðru lagi hafa fiskistofnarnir verið í lægð. Því hefur þurft að takmarka veiðar verulega. Við hefðum getað veitt meira úr stofnunum og aukið þannig ráðstöfunartekjur okkar um stund en rýrt möguleika til lengri framtíðar. Er það skynsamlegt? Allir sem hugsa til framtíðarinnar svara þeirri spurningu einnig neitandi.
Í ljósi þessara staðreynda eigum við Íslendingar ekki eins marga kosti og af er látið. Við getum ekki efnt til frekari skuldasöfnunar erlendis. Við verðum að takmarka veiðar og byggja fiskistofnana upp. Eina leiðin út úr þeim vanda sem nú steðjar að er því að sýna aðhald á öllum sviðum þjóðarbúskaparins og nota hvert tækifæri til að auka framleiðsluna og örva hvers konar nýjungar sem geta aukið verðmætasköpun þjóðfélagsins. Þetta eru menn að reyna að gera og hver sá ábyrgi aðili, sem færi með stjórn landsins, yrði að gera hið sama.
Hitt er svo annað mál að margt mætti betur fara og ekki er sama á hvaða sviðum aðhald er sýnt. Ef sérhver þáttur þjóðlífsins væri tekinn fyrir og hver og einn spyrði sjálfan sig hvað mætti betur fara væri áreiðanlega víða hægt að ná árangri. Við getum lifað góðu lífi í landinu þótt bankar og verðbréfasalar væru færri. Það mun enginn finna fyrir því þótt bensínstöðvum fækkaði. Það er hægt að sinna sjúkum og öldruðum án þess að byggja rándýrar byggingar.
Sjávarútvegurinn, undirstaða velferðar okkar, hefur verið í miklu basli um langan tíma. Við upphaf kjörtímabilsins blasti við mikill samdráttur í afla en áður hafði mikillar bjartsýni gætt um betri aflabrögð og því höfum við eignast öflugan fiskiskipaflota. Við slíkar aðstæður var ekki margra kosta völ. Aflinn var skammtaður á hvert fiskiskip, hvatt var til nýjunga og aðstæður skapaðar til að leggja óhagkvæmustu skipunum, draga úr tilkostnaði og auka verðmæti afla. Þessar aðgerðir hafa vissulega sniðið mörgum þröngan stakk. Meira er um vert hverju þær hafa skilað. Hafa þær orðið til að auka verðmæti aflans meira en annars hefði orðið? Hafa þær orðið til þess að aflinn er sóttur með minni tilkostnaði? Hafa þær orðið til þess að afli hafi komið á land sem annars hefði ekki veiðst?
Því miður liggja ekki enn fyrir reikningar fyrir útgerðina í heild á árunum 1984 og 1985 en í áætlunum Þjóðhagsstofnunar er reiknað með að í kjölfar nýju fiskveiðistjórnarinnar hafi fylgt 9-10% sparnaður í sóknartengdum útgerðarkostnaði. Fyrir botnfiskveiðiflotann í heild er hér um nálægt 400 millj; kr. á ári að ræða miðað við núgildandi verðlag. Á sama hátt má telja víst að kvótakerfi í loðnu- og síldveiðum hafi gert þær veiðar hagkvæmari en fyrr. Samtök útvegsmanna gera ekki athugasemdir við þessar áætlanir og vísbendingar úr útgerðarreikningum, sem fyrir liggja, virðast ekki stangast á við þær.
Fiskveiðistjórnin stuðlar að bættri meðferð aflans þar sem menn geta ekki lengur bætt sér upp lakari gæði með því að moka upp fiski. Gæðaflokkunin 1984 á þorskaflanum sýndi að 85,5% fóru í fyrsta gæðaflokk samanborið við rúmlega 80% árið áður. Gæðaflokkun 1985 virðist vera svipuð og 1984. Þessi framför eykur verðmæti þorskaflans fyrir útveginn um nálægt 200 millj. kr. á ári miðað við núgildandi verðlag. Auðvitað er ekki hægt að fullyrða að þessi breyting stafi eingöngu af breyttri fiskveiðistjórn en hún gæti átt hér hlut að máli og áreiðanlega er hægt að ná enn meiri árangri.
Með tilkomu hins svokallaða kvótakerfis á botnfiskveiðum 1984 voru menn hvattir til að beina sókn að nýjum og vannýttum stofnum. Rækjuveiðar á djúpmiðum 1984 og 1985 eru glöggt dæmi um þetta. Árið 1984 jókst rækjuaflinn frá árinu áður um rúmlega ellefu þúsund tonn og árið 1985 er búist við að rækjuaflinn verði svipaður og 1984. Þessi aflaaukning felur í sér aukin útflutningsverðmæti um 700-800 millj. kr. miðað við núverandi verðlag ekki síst af því að rækjan er í vaxandi mæli heilfryst um borð. Ætla má að takmörkun á leyfilegt aflamark verði einmitt til þess að menn reyni að gera sér mat úr því sem þeir hafa úr að spila með því að auka vinnsluvirði aflans enda hefur sú orðið raun.
Nú höfum við öðlast verulega reynslu í stjórnun veiðanna. Verulegur árangur hefur náðst á þessu sviði eins og áður er getið þótt núverandi reglur séu alls ekki gallalausar. Þessi árangur er augljós og íslenskt þjóðfélag hefur ekki efni á að kasta honum fyrir borð.
Það er hlutverk okkar, sem í stjórnmálum störfum, að ryðja nýjar brautir og byggja upp fyrir komandi kynslóðir.Í þeim efnum má ekki falla í þá gryfju að eyða auðlindum og safna upp skuldum. Þessa kröfu verðum við að gera til okkar sjálfra og unga fólkið, sem nú mun taka á sig meiri ábyrgð um stjórn þjóðfélagsins en áður, hlýtur að krefjast þess að varlega sé farið.
Í þeim drögum að frumvarpi um stjórn fiskveiða sem ég hef að undanförnu kynnt er byggt á fenginni reynslu af núverandi fiskveiðistjórnun en jafnframt reynt að sniða af helstu gallana. Í drögunum felst að Alþingi taki ákvörðun um meginatriði fiskveiðistefnunnar enda er hér um mikilvægar ákvarðanir að ræða og því æskilegt að þær séu mótaðar í löggjöf. Þá er einnig lagt til að meginreglur gildi til þriggja ára enda er með því móti reynt að draga úr óvissu um rekstrarskilyrði útvegsins og enn fremur láta menn njóta eigin aflareynslu á næstu árum þannig að veiðileyfi verði ekki eingöngu háð afla á viðmiðunarárunum 1981-1983.
Eitt af meginatriðum frumvarpsdraganna er að gefa hverjum þeim sem útgerð stundar kost á vali milli aflamarks og sóknarmarks eins og gilti á þessu ári, en þó þannig að rýmkaður sé réttur þeirra sem sóknarmarkið velja. Með þessu móti er reynt að varðveita eftir því sem kostur er sjálfsákvörðunarrétt og athafnafrelsi einstaklingsins sem útveginn stundar þannig að heildarafla úr mikilvægustu botnfisktegundum sé haldið innan hæfilegra marka. Um leið ætti að vera sniðinn af helsti gallinn, sem þótt hefur á aflamarkinu, að sem allra minnst sé ákveðið fyrir fram um aflahæfi einstakra útgerða og áhafna. Þess í stað sé mönnum gefinn kostur á að stunda veiðar ákveðinn fjölda daga og láta á það reyna hvers þeir eru megnugir.
Í ár er reiknað með að framleiðsla sjávarafurða aukist um tæp 4% sem er mun minni aukning en var á árinu 1984. Búast má við svipaðri aukningu árlega næstu tvö til þrjú árin.
Rekstrarstaða sjávarútvegsins er hins vegar verulegt áhyggjuefni. Í heild virðist sjávarútvegurinn nú rekinn með halla. Áætlanir benda til að framan af árinu hafi botnfiskvinnsla verið rekin með lítils háttar hagnaði en staða frystingar þó verið sýnu lakari en afkoma söltunar. Afkoma botnfiskveiðanna hefur hins vegar verið erfið það sem af er árinu þrátt fyrir aukinn afla. Við síðustu fiskverðsákvörðun hefur að vísu dregið úr hallarekstri útgerðarinnar en á móti kemur að afkoma vinnslunnar hefur snúist úr hagnaði í tap. Út úr þessum vanda er engin einföld leið. Hér sem annars staðar gildir það að sýna aðhald varðandi tilkostnað og nýta öll möguleg tækifæri til aukinnar verðmætasköpunar.
Þjóðfélagið verður að sýna sjávarútveginum meiri skilning. Stöðug kröfugerð á hendur honum er blóðtaka sem allir tapa á til lengri tíma. Varkár og ábyrg fiskveiðistefna er til lítils ef enginn vill taka tillit til hennar í reynd og heimtar sífellt meir af undirstöðunni, sjávarútvegi. Slík kröfugerð heftir sjávarútveginn í fjötra taps og skulda og stöðvar framþróun hans sem ekki fær staðist og leiðir aðeins til óheilla. Á það jafnt við um opinbera aðila, atvinnurekendur og launþega. Að öðru leyti skiptir það meginmáli að skapa þessum atvinnuvegi sem öðrum þann efnahagslega stöðugleika sem er forsenda allra framfara og hagvaxtar.
Alþb. hefur að undanförnu og hér í umræðunum lagt áherslu á nýja sókn í atvinnumálum en það hefur undanfarið verið að afla sér upplýsinga um það sem verið er að gera. Fyrir rúmum tveimur árum síðan gekk Framsfl. til kosninga undir kjörorðunum: Festa, sókn, framtíð. Frá þessari stefnu hefur Framsfl. ekki hvikað. Undir hans forustu var tekið af festu á stjórn efnahagsmála. En það var forsenda fyrir því að hægt væri að hefja nýja sókn til betri framtíðar. Þetta tókst og í samræmi við þessa stefnu mótaði miðstjórn flokksins fyrir einu ári síðan sérstaka áætlun um nýsköpun atvinnulífsins. Þessa áætlun þekkja flestir því hún er helsti grundvöllurinn í atvinnustefnu þessarar ríkisstjórnar. Nú er Alþb. að vakna upp við það að atvinnulífið skiptir miklu máli, en áður hafa þeir lagt höfuðáherslu á offjárfestingu, t.d. í orkumálum, stöðugt vaxandi ríkisumsvif með samsvarandi skuldasöfnun. Vonandi er hér um einlæga stefnubreytingu að ræða þó enn beri mest á slagorðunum eins og svo oft áður.
Góðir hlustendur. Slagorðin munu ekki duga nú frekar en fyrr. Raunsæi og festa er lykillinn að bættri stöðu þjóðarbúsins.
- Ég þakka áheyrnina. Góða nótt.