22.04.1986
Sameinað þing: 80. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4444 í B-deild Alþingistíðinda. (4205)
Úthlutun raðsmíðaskipa
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Það er nokkuð sérstakt að koma inn í umræðu sem þessa þar sem maður heyrir þm. beggja flokka ríksstj. deila um afgreiðslu mála. Það er merkilegt vegna þess að þeir eru höfundar þeirra reglna sem unnið er eftir þegar ákveðið er hvert skipin skuli fara. Hvernig eru þær reglur byggðar upp? Þær eru byggðar upp út frá því sjónarmiði einu að afl peninganna ráði. Það er ekki farið eftir því hvernig þeir peningar koma í hendur þeirra aðila sem með peningana skuli fara heldur hvaða klíka er öflugust bak við hvern. Hefði ekki verið eðlilegra að aðrar reglur hefðu verið útbúnar til að ráðstafa þessum skipum? Ætli það hefðu ekki verið eðlilegri reglur að þessi skip hefðu farið fyrst og fremst á þá staði þar sem vantaði skip, þar sem við blasti atvinnuleysi, í stað þess að þau skip skyldu fyrst og fremst fara til þeirra aðila sem hafa fjármagn milli handanna? Það var afl auðsins, afl peninganna, en ekki það að þennan eða hinn staðinn vantaði atvinnutæki til að tryggja atvinnu á viðkomandi stað.
Það er furðulegt að heyra svo framsóknarmenn og sjálfstæðismenn vera að deila um hver úrskurðurinn var. Hann hlaut alltaf að verða úrskurður hins peningalega sterka. Þá skipti ekki máli hvort þeir peningar voru erlent lán eða farnar einhverjar aðrar leiðir, kannske svipað lán eins og maður er að frétta að sé verið að veita til hótelbygginga hringinn í kringum landið. Það skipti ekki máli. Þeir sem gátu sýnt að þeir höfðu peninga fengu skipin. Það skipti ekki máli þó að annar staður sækti um skip og byggði sín rök fyrst og fremst á því að það þyrfti að fá atvinnufyrirtæki á viðkomandi stað. Nei, það var vald peninganna. Þannig hefur þessi ríkisstjórn stjórnað og ætlar að stjórna fyrst og fremst með valdi peninganna á einhvern veg, allt eftir því hvort þessi eða hin klíkan er öflugri.