22.04.1986
Sameinað þing: 80. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4446 í B-deild Alþingistíðinda. (4209)
Skýrsla menntamálaráðherra um Lánasjóð íslenskra námsmanna
Kristín Halldórsdóttir:
Herra forseti. Það missir kannske marks að koma upp í ræðustól eftir svo langt hlé á þessari umræðu og ég skal vera ákaflega stuttorð.
Mér fannst hæstv. menntmrh. nánast gera sér leik að því að snúa út úr orðum mínum í umræðunum eða misskilja þau, orðum sem ég lét falla um hag lánasjóðsins og hag námsmanna og forgangsröðina í þeim efnum. Kannske skilur hæstv. ráðh. ekki hvað ég á við. Auðvitað fara hagur lánasjóðsins og hagur námsmanna saman, en það er blæbrigðamunur á því í hvaða röð hlutirnir eru sagðir. Þess vegna endurtek ég að ég hugsa fyrst um hag námsmanna og í öðru lagi um hag sjóðsins. Þetta er sami munur og er á því hvort við segjum að hagvöxtur og farsæl atvinnuþróun séu grundvöllur þess að við getum byggt upp menntun í landinu eða hvort við snúum því við og segjum að góð menntun sé grundvöllurinn undir hagvexti og farsælli atvinnuþróun. Ég vona að hæstv. ráðh. skilji nú hvað ég átti við.