22.04.1986
Sameinað þing: 80. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4460 í B-deild Alþingistíðinda. (4233)

172. mál, afskipti bankaeftirlitsins af málefnum Útvegsbankans

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. bankamálaráðherra fyrir þessa skýrslu sem við þm. Alþb. fórum fram á að gefin yrði hér á Alþingi til að skýra afskipti bankaeftirlitsins af málefnum Útvegsbankans og einnig afskipti bankaeftirlitsins hvað varðaði einstaka viðskiptavini Útvegsbankans, sérstaklega fyrirtækið Hafskip hf.

Ég held að hér sé komið gott gagn og þarft innlegg í þá rannsókn sem stendur nú yfir á reiðum þessa fyrirtækis og á stöðu Útvegsbankans. Það var mjög þarft og eðlilegt bæði vegna þeirrar rannsóknar en ekki síður vegna þess umtals sem varð eðli málsins samkvæmt um frammistöðu bankaeftirlitsins. Þegar slíkir atburðir gerast sem raun ber vitni þegar fyrirtækið Hafskip fór á höfuðið og Útvegsbankinn væntanlega tapar þar stórum fjárhæðum hljóta að vakna ýmsar spurningar um það eftirlitskerfi sem við lýði er og á að koma í veg fyrir að slíkt gerist, hvernig það hafi reynst.

Ég held að það sé einnig fróðlegt að fá þessa skýrslu fram í sambandi við þá endurskoðun á skipulagi bankamála sem nú á sér stað. Í því sambandi vil ég minna á frv. okkar nokkurra þm. Alþb. um sjálfstætt bankaeftirlit. Það hefur verið okkar afstaða að bankaeftirlitið ætti að vera fullkomlega sjálfstæð og óháð stofnun án nokkurra tengsla við miðbankann eða aðrar bankastofnanir. Ég hygg, herra forseti, að fátt rökstyðji þessa afstöðu okkar betur en einmitt svarið við þessari beiðni um skýrslu. Það kemur skýrt og skilmerkilega fram í þessu svari að bankaeftirlitið sem slíkt hefur aftur og aftur sent frá sér aðvaranir, gefið gult ljós, ef svo má að orði komast, um stöðu þessa banka og stöðu einstakra fyrirtækja í viðskiptum við hann. Það er einnig rakið hvert þær athugasemdir hafa farið og hver afdrif þeirra hafa orðið. Í því sambandi vil ég halda því fram, herra forseti, að það komi greinilega fram hversu óeðlilega mikil völd bankastjórnin hefur í þeim tilfellum að bankaeftirlitið innan veggja Seðlabankans sendi frá sér slíkar athugasemdir.

Ég held að það væri mun heilbrigðara fyrirkomulag að bankaeftirlitið væri sjálfstætt og óháð og hefði sterka stöðu gagnvart bankakerfinu og miðbankanum, m.a. til að fyrirbyggja að seinagangur og linkind varðandi framkvæmdir í slíkum tilfellum ætti sér stað eins og mér finnst óneitanlega mega lesa út úr þessari skýrslu. Bankaeftirlitið hefur margoft, eins og kemur fram á bls. 2, gert úttekt á fjárhagslegri stöðu Útvegsbankans, bæði aðalbankans og einstakra útibúa, og þar af ekki færri en þrjár heildarathuganir á síðustu tíu árum, auk sérstakra athugana á stærstu lánþegum bankans og einstökum útibúum. Auk alls þessa hefur bankaeftirlitið sinnt sinni almennu eftirlitsskyldu gagnvart þessum bönkum eins og öðrum og gert sérstakar athuganir á einstökum þáttum í starfsemi bankans.

Það sem ég hefði talið nokkuð fróðlegt að ræða, herra forseti, ef tíminn hefði leyft það, er málsmeðferð í hverju einstöku tilfelli. Það nægir að segja að bankaeftirlitið hafi sent frá sér afdráttarlausar aðvaranir endurtekið um stöðu Útvegsbankans og einstakra viðskiptavina hans. Ég hygg að því verði ekki á móti mælt að þær aðvaranir hafa verið eftir efnum og ástæðum sterklega orðaðar. En skýrslan ber með sér að afdrif þessara athugana og þessara aðvarana bankaeftirlits hafa verið með ýmsum hætti. Það vekur athygli, herra forseti, að einstakir hæstv. ráðherrar eða bankastjórn Seðlabanka eftir atvikum eða bankaráð hafa ekki fylgt málinu ýkja lengi eftir, að því er séð verður. Það vekur t.d. athygli varðandi athugunina 1977 og 1978 að viðskrh. á þeirri tíð hefur ekki fylgt því máli ýkja mikið eftir né heldur úttektinni frá því í mars 1975. Aðeins í eitt skipti á árunum 1978-1979 virðist málunum hafa verið fylgt eftir að einhverju gagni. Þetta vekur óneitanlega spurningar, herra forseti, sem eðlilegt hefði verið að ræða hér. Á bls. 7 og 8 kemur fram að viðskrh. á framanverðu ári 1979 fylgdi málinu eftir m.a. með bréfaskriftum og sérstökum tilmælum, en það er í eina skiptið sem slíkar aðgerðir er að finna af hálfu einstakra viðskrh. þessa tímabils og fram koma í þessu svari.

Það væri einnig fróðlegt að fara yfir kaflana á bls. 12 og 13 og áfram þar sem fjallað er sérstaklega um afskipti bankaeftirlitsins vegna Hafskipsmálsins. Þar segir m.a., herra forseti, á bls. 12, með leyfi þínu:

„Í skýrslu bankaeftirlitsins um niðurstöður eftirlits hjá Útvegsbankanum frá 31. mars 1975 er gerð grein fyrir viðskiptum Hafskips við bankann og þróun þeirra frá miðju ári 1972. Á því tímabili jókst fyrirgreiðsla bankans við fyrirtækið um rúmlega 70% á föstu verðlagi og var bankinn þá kominn í hættulega stöðu. Í niðurstöðum bankaeftirlitsins um þetta mál segir:

„Þróun þessara skuldaviðskipta er þannig allt fram á árið 1973 að vægast sagt verður ekki séð að hún hafi á neinn hátt verið í samræmi við hagsmuni bankans, enda bankinn þá kominn í mjög hættulega stöðu í málinu.“"

Svona fast var kveðið að orði þegar á þessum tíma. Svipað orðalag er viðhaft á árunum 1975 og 1977 og þar segir, með leyfi þínu, forseti:

„Bankaeftirlitið hefur ekki framkvæmt athugun á útlánaviðskiptum aðalbanka Útvegsbankans frá því að framangreindri athugun frá árinu 1973 lauk. Ekki verður annað sagt en að þær staðreyndir, sem nú blasa við um þróun viðskiptanna við Hafskips hf. s.l. 2-3 ár og stöðu þeirra mála í dag, hafi komið bankaeftirlitinu á óvart. Með tilliti til fyrri reynslu bankans af þessum viðskiptum og með hliðsjón af mjög erfiðri fjárhagsstöðu bankans sjálfs mátti ætta að ýtrasta aðhald og aðgát yrði sýnd í þessu máli.“

Og enn fremur: „Hvernig sem á þetta mál er litið er ljóst að staða Útvegsbankans er orðin stórlega viðsjárverð. Komi til gjaldþrots hjá fyrirtækinu [þ.e. Hafskipi hf.] gæti bankinn á skömmum tíma þurft að leysa til sín kröfur upp á hundruð milljóna kr.“ Og er þeirri áhættu síðan lýst nánar í grg., sem dagsett er 24. okt. 1977, og þar er talið að fjárútlát bankans yrðu vart undir 700 millj. gkr.

Enn fremur segir: „Auk hugsanlegra áhrifa á lausafjárstöðu bankans verður svo að horfast í augu við þá hreinu taphættu sem bankinn er í. Hér að framan er gerð grein fyrir hinni miklu óvissu sem er um raunverulega eiginfjárstöðu Hafskips og óvissu um raungildi þeirra greiðslutrygginga sem bankinn hefur. Í viðbót við það gífurlega áfall, sem innlausn skulda fyrirtækisins og fjárbinding af þeim sökum yrði bankanum, verður því engan veginn útilokað að um umtalsverð endanleg skuldatöp gæti orðið að ræða.“

Herra forseti. Ég taldi óhjákvæmilegt að vitna beint í svör bankaeftirlitsins til að rökstyðja þá niðurstöðu mína af þessari skýrslu að bankaeftirlitið hafi sem slíkt staðið vel í stykkinu og skilað, eins og því ber, þeim aðvörunum og það sterklega orðuðum aðvörunum sem eðlilegar hafa verið í ljósi stöðu bankans og viðskiptavinarins, Hafskips, á þessum tíma. Það sem vekur hins vegar miklu fleiri spurningar er hvers vegna, í ljósi þessara aðvarana frá bankaeftirlitinu, mál þróuðust sem raun ber vitni ár frá ári og gengu áfram með þeim afleiðingum og þeirri niðurstöðu sem raun ber nú vitni. Það er vissulega umhugsunarefni, herra forseti, mikið umhugsunarefni, en ég fagna því út af fyrir sig, m.a. vegna þeirra starfsmanna bankaeftirlitsins sem óhjákvæmilega tengjast þessu máli, að þeirra hlutur hefur nú verið sæmilega hreinsaður, að ég tel, með svari því við beiðni um skýrslu sem ég hef hér gert að umtalsefni og þakka hæstv. viðskrh. fyrir aftur.