22.04.1986
Sameinað þing: 80. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4462 í B-deild Alþingistíðinda. (4234)
172. mál, afskipti bankaeftirlitsins af málefnum Útvegsbankans
Jón Baldvin Hannibalsson:
Herra forseti. Vera má að það sé ekki til mikils gagns að eyða miklu púðri eða löngum ræðutíma í skýrslur sem beðið er um í nóvember og svarað er í apríl. Þó er það álitamál. Þessi skýrsla, sem hér er á dagskrá, skýrsla viðskiptaráðherra um afskipti bankaeftirlitsins, er gagnleg. Ég er sammála þeim ályktunum seinasta ræðumanns að þessi skýrsla sé stuðningur við þau sjónarmið sem fram komu í tillögum og umræðum þegar þm. fjölluðu fyrr um þýðingarmikið frv. um ný lög um Seðlabanka Íslands. Þá voru lagðar fram eindregnar tillögur um að efla mjög sjálfstæði bankaeftirlitsins, en þær tillögur náðu ekki fram að ganga og tel ég það misráðið.
Að öðru leyti vekja þessar skýrslur upp spurningar um hlutverk bankaráða. Bankaráð virðast satt að segja vera eins konar „sleeping partners“ í þessu kerfi. Hugsunin er sú að þau eru þingkjörin og þau eiga að vera eftirlitsaðilar þingsins, almannahagsmuna, jafnvel þeirra þingflokka sem kjósa eða tilnefna fullrúa sína, en í annan stað eru ákvæði viðskiptabankalaga um bankaleynd þess eðlis að hvenær sem er er hægt að beita þeim ákvæðum til þess að upplýsingar komist ekki á framfæri. Síðan má ráða af þessu, eins og ótal fleiri dæmum, að bankaráðin eru ekki mjög virkur eftirlitsaðili og er þá vægilega að orði komist.
Þær upplýsingar sem hér liggja fyrir um hlutverk t.d. bankaráðs Útvegsbankans í því örlagaríka máli sem fjallar um samskipti bankans við Hafskip hf. virðast eindregið staðfesta að það þurfi að taka þetta eftirlitshlutverk bankaráðsins til endurskoðunar.
Í umræðunum um frv. um Seðlabanka voru sérstaklega að því er varðar 18. gr. þess frv. lagðar fram tillögur um að skylda bankaeftirlitið sem sjálfstæða stofnun til að gera ekki einasta bankastjórnum viðvart heldur líka bankaráðum og skoðunarmönnum skv. nýjum ákvæðum viðskiptabankalaga ef bankaeftirlitinu sýnist eitthvað óeðlilegt eða aðfinnsluvert við rekstur bankastofnunar og þá strax á fyrsta stigi, ekki bara þegar fyrir liggur að bankastjórn hefur ekki orðið við beinum tilmælum um endurbætur í starfsháttum.
Herra forseti. Hér liggur á borðum þm. önnur skýrsla frá viðskrh. um stöðu Útvegsbanka Íslands sem beðið var um um líkt leyti, þ.e. væntanlega í lok nóvember, sem getur ekki komist með formlegum hætti á dagskrá eða til umræðu en er þó nánast partur sama máls. Þess vegna leyfi ég mér, herra forseti, að vekja athygli á örfáum atriðum varðandi þá skýrslu.
Hún snerist um málefni Útvegsbankans og var beiðni um skýrslu frá viðskrh. um stöðu Útvegsbankans í ljósi upplýsinga í fjölmiðlum um viðskipti bankans og fyrirtækisins Hafskips hf. Ég verð sem upphafsmaður ásamt með öðrum að beiðni um þá skýrslu að láta í ljós mikil vonbrigði mín með þau svör sem þarna er að finna, sérstaklega við þeim spurningum sem enn hafa þó eitthvert lærdómsgildi. Upplýsingar um eigið fé bankans nú eða hvert var áætlað tap bankans eru út af fyrir sig úreltar eða löngu fram komnar. Það hlýtur þó að vera áhyggjuefni að hér kemur fram að eigið fé bankans sem svar við þriðju fyrirspurn er, miðað við 31. des. 1985, metið á aðeins 115 millj. kr., en það er þriðjungur til fjórðungur af þeirri upphæð sem upphaflega var talið í umræðum um málið að væri eigið fé bankans. Á þeim tíma lét ég í ljós efasemdir um að eigið fé bankans væri svo mikið sem í veðri var látið vaka. Þetta virðist staðfesta að þær grunsemdir voru réttar. Bankamenn höfðu reyndar vakið athygli á því að skilgreining á eigin fé banka er mismunandi eftir bönkum. Þannig hafði t.d. löngu áður verið á það bent að eigið fé Útvegsbankans er bókfært á annan veg. Þannig er t.d. ekki tekið tillit til verulegra útistandandi skuldbindinga bankans við eftirlaunasjóð starfsmanna og fleiri slík aðfinnsluefni höfðu verið sett fram.
En meginatriðin, sem hefði gildi að fá upplýsingar um, eru svör við spurningum eins og fimmtu spurningu: Hefur stjórn Útvegsbankans sniðgengið reglur og hefðir í bankaviðskiptum um greiðslutryggingar útlána? Svarið við því er ósköp einfaldlega ekkert, en það bíður niðurstöðu nefndar sem enn er að fjalla um málið.
Spurning númer sex: Hefur bankastjórn Útvegsbankans fengið villandi upplýsingar frá Hafskipi hf. um rekstur, afkomu og hagnað og veðhæfi eigna? Svarið við því er líka ekkert, en segir að kannske megi vænta þess þegar rannsókn skiptaráðenda verður lokið.
Svör formanns bankaráðs við tveimur spurningum um viðbrögð og aðgerðir hins þingkjörna bankaráðs eru líka þess eðlis að þau valda vonbrigðum og virðast satt að segja staðfesta þau orð sem ég lét falla áður um að hlutverk hinna þingkjörnu bankaráða virðist vera ansi takmarkað. Og þau gegna ekki hlutverki sínu ef menn standa í þeirri trú að þau séu einhver eftirlitsaðili sem Alþingi geti reitt sig á í þessum efnum.
Næstseinasta spurningin skiptir máli og hefur gildi enn: Hyggst ríkisstjórnin beita sér fyrir fækkun, afnámi eða sameign ríkisbanka af þessu tilefni? Svarið er mjög véfréttarlegt. Þar segir að ríkisstjórnin hyggist beita sér fyrir skipulagsbreytingum innan bankakerfisins m.a. með hliðsjón af stöðu þessa máls. Jafnframt skal minnt á að viðskrh. kynnti alþm. í desember 1985 tillögur þriggja manna nefndar um sameiningu og fækkun viðskiptabanka. Mikið rétt. En það sem um er spurt er auðvitað um afstöðu ríkisstjórnarinnar, um pólitískar ákvarðanir í framhaldi af því gífurlega áfalli sem Útvegsbankinn varð fyrir. Hann hefur síðan verið rekinn í gjörgæslu Seðlabankans og framtíðarstaða hans er auðvitað mjög óviss út frá þeim tölum sem þarna eru gefnar upp um eiginfjárstöðu. Svarið bendir til þess að ríkisstj. hafi ekki gert þetta upp við sig og málið sé látið dankast.
Herra forseti. Þá vil ég að lokum vekja athygli á að í þrettándu spurningu var spurt: Hvaða breyting verður á skuldastöðu Hafskips hf. við Útvegsbankann á tímabilinu 15. janúar 1980 til 2. júní 1983? Þessi spurning lýtur að því vandamáli sem varðar hagsmunaárekstur, þ.e. þeim þætti málsins, sem mikið var ræddur á sínum tíma, að hæstv. núv. iðnrh., fyrrv. fjmrh., hafði gegnt á sama tíma embætti formanns bankaráðs Útvegsbankans og stjórnarformanns Hafskips hf. Í umræðunum kom fram að hæstv. ráðh. tók þessar ábendingar óstinnt upp. Hann tók þær persónulega til sín í stað þess að viðurkenna að vandamál af þessu taki eru auðvitað stjórnsýsluvandamál. Það þurfa að vera ákveðnar reglur sem koma í veg fyrir að slíkur hagsmunaárekstur geti átt sér stað og menn eiga að hegða sér í samræmi við það.
Svarið við þessari spurningu er að skuldbindingar Hafskips hf. gagnvart Útvegsbankanum námu 18,2 millj. kr. 15. jan. 1980, en 2. júní 1983 eða á þeim tíma sem hæstv. ráðh. gegndi báðum störfum höfðu þessar skuldbindingar aukist milli 15- og 16-falt, þ.e. upp í 288,6 millj., en miðað við lánskjaravísitölu er þá um rúmlega þreföldun að ræða. Þetta svar er tiltölulega skýrt og afdráttarlaust. Það staðfestir óumflýjanlega og óvefengjanlega að hagsmunaáreksturinn má meta í tölum og hann er dæmi um hvað við getum lært af mistökum þessa máls. Niðurstaðan er sú að við eigum að taka þessa gagnrýni alvarlega og setja reglur sem koma í veg fyrir að slíkur hagsmunaárekstur geti átt sér stað í framtíðinni.