22.04.1986
Sameinað þing: 80. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4474 í B-deild Alþingistíðinda. (4240)

330. mál, endurnýjun fiskiskipastólsins

Kolbrún Jónsdóttir:

Herra forseti. Ég ætla nú ekki að lengja þessa umræðu en ég ætla að byrja á því að þakka hv. 4. þm. Vesturl. fyrir það frumkvæði að biðja um þessa skýrslu. Hér er mikið af upplýsingum sem er nauðsynlegt að gefa sér tíma til að fara yfir.

Aðeins örstutt spurning til hæstv. ráðherra vegna þeirrar reglugerðar sem hér er birt: Þar kemur skýrt fram að þeir sem eiga rétt á því að kaupa skip eru þeir sem hafa átt skip fyrir. Við vitum að á vissum stöðum á landinu eru erfiðleikar vegna breyttra aðstæðna og hjá mönnum sem eiga ekki skip fyrir. Hvernig verður brugðist við slíkum erfiðleikum séu ekki skip innanlands til sölu fyrir þessi byggðarlög og þar má nefna Kópasker? Það eru vandamál sem við stöndum frammi fyrir sem verður að leysa og menn hafa gert ítrekaða tilraun til þess að fá skip keypt innanlands en hér spilar auðvitað kvótakerfið mjög mikið inn í.

Það er sem sagt ekki hægt að kaupa skip ef ekki fæst kvóti. Það er mjög skiljanlegt. En fram að þessu ári, á s.l. ári, var ekki kvóti á rækju þannig að menn eru seinheppnir sem byggja í þeim landshlutum þar sem sú fisktegund sem nýtt er á því landsvæði var utan kvóta í fyrra en er komin í kvóta núna í ár, eða a.m.k. þarf leyfi. Og á sama tíma er bannað að kaupa skip nema eiga skip fyrir, eða fá lán út á skip nema eiga skip fyrir. Ég vildi bara heyra hæstv. ráðherra gefa skýringu í örstuttu máli á því hvað á að gera í þessu reyrða kerfi í sjávarútvegi sem nú er ef vissir landshlutar lenda í erfiðleikum vegna breyttra aðstæðna.