22.04.1986
Sameinað þing: 80. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4486 í B-deild Alþingistíðinda. (4246)

330. mál, endurnýjun fiskiskipastólsins

Landbrh. (Jón Helgason):

Herra forseti. Eins og áður er hægt að taka undir það að hægt sé að ræða þetta í löngu máli. En ég veit ekki hvaða þýðingu það hefur við þessar aðstæður og líka eru viðhorf okkar hv. 5. þm. Austurl. nokkuð ólík, að sumu leyti a.m.k.

Ég gat þess að ástæðan fyrir því að ekki væri unnt að svara meginhluta þessarar beiðni um skýrslu væri sú að ekki lægi fyrir fullvirðismark einstakra jarða. Það sagðist hv. 5. þm. Austurl. vita en taldi að það hefði þó verið betra fyrir mig að gefa röng svör en engin. Það tel ég ekki vera betri kost. Ég held að það sé hinn lakasti kostur að setja tölur sem ekki eru endanlegar á blað frekar en engar. Síðan er við það að bæta, eins og ég sagði, að það er álitamál hvort á að vera að birta þessar tölur fyrir einstaklinga og um það gilda sérstök lög, um nefnd sem um það eigi að fjalla, og hún hefur ekki svarað þeirri beiðni enn þá um álit á því.

Varðandi tölur er það líka svo að misjafnt er hvernig menn nota þær. Hv. 5. þm. Austurl. sagði að það væri samdráttur í sölu mjólkurvara. Frá áramótum hefur á sölusvæði Mjólkursamsölunnar í Reykjavík a.m.k. orðið 3% söluaukning á þeim mjólkurvörum sem hún setur, sem eru fyrst og fremst svo kallaðar dagvörur. Þetta kalla ég ekki samdrátt í sölu því að 3% aukning á milli ára er allmikil aukning þannig að okkur greinir töluvert á um hugtök og framsetningu.

Hv. þm. spurði einnig um það hver væri ætlunin í sambandi við sauðfjárframleiðslu næsta árs. Á bls. 11 í þessari skýrslu stendur þó: „Undirbúningur að reglugerð um framleiðslu mjólkur og sauðfjárafurða næstu verðlagsár er nú þegar í fullum gangi.“ Ég gat þess að það hefði verið ítrekuð beiðni um slíkar tillögur frá Stéttarsambandi bænda og Framleiðsluráði. Það var sendur spurningalisti til allra búnaðarfélagsstjórna í landinu og kjörmanna og frá yfirgnæfandi meiri hluta búnaðarfélaga bárust svör. Auðvitað er margt athyglisvert í þeim svörum. Þessi svör voru tekin til skoðunar af búmarksnefnd Framleiðsluráðs og á grundvelli þeirra hefur hún gert drög að tillögum um skiptingu framleiðslunnar fyrir næstu verðlagsár sem ég var að fá í hendur um helgina og ætlunin er að fulltrúar Framleiðsluráðs fari með á alla kjörmannafundi í landinu á næstu 10 dögum eða svo. Þessir fundir eru opnir öllum bændum þannig að þar gefst mönnum kostur á að fjalla um þetta.

Þessi drög eru í sama formi og þær tillögur sem birtar eru hér, þ.e. þau eru ekki í reglugerðarformi og í nokkuð svipuðum anda og er í hinum fyrri tillögum sem hér eru birtar. En þær höfðu ekki borist ráðuneytinu þegar þessi skýrsla fór í prentun sem þó var dregið svo lengi, eins og hv. þm. lagði mikla áherslu á, að hefði verið of lengi.

Eins og ég gat um áðan var bætt inn í reglugerðina að mestu leyti 10. gr. hennar sem fjallar um að tillit sé tekið til breyttra aðstæðna síðustu árin frá því sem var í tillögum búmarksnefndar Framleiðsluráðs. Mér fannst það athyglisvert að í þeim svörum sem komu frá búnaðarfélögunum virtist það vera ríkjandi skoðun bænda að það ætti fyrst og fremst að taka tillit til búmarksins en ekki breyttra aðstæðna á síðustu árum sem höfðu gerst án breytingar á búmarki. Og þar get ég vissulega viðurkennt að ég er á nokkuð annarri skoðun. Ég held að slíkt sé óhjákvæmilegt. Við megum ekki binda okkur allt of mikið við fortíðina. Það kemur líka í veg fyrir það sem hv. 5. þm. Austurl. lagði áherslu á, og ég er honum sammála, að við skipulagningu framleiðslunnar þurfi að taka tillit til aðstæðna, landgæða, markaðsaðstæðna og annarra atvinnumöguleika. En slíkt er mjög erfitt ef á um of að binda sig við tölur langt aftan úr fortíðinni. Þetta hef ég látið í ljós áður að er mitt viðhorf og einn megintilgangur laganna að gera slíkt kleift, að ná fram meiri hagkvæmni í landbúnaði með betra skipulagi. En allt þetta vekur kannske spurningu um það hvað var gert í þessum málum af þeirri ríkisstj. sem hv. 5. þm. Austurl. átti sæti í. (Gripið fram í: Spurðu Steingrím.)