23.04.1986
Efri deild: 88. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4495 í B-deild Alþingistíðinda. (4257)
205. mál, Seðlabanki Íslands
Frsm. minni hl. (Ragnar Arnalds):
Virðulegi forseti. Eins og hv. nefndarmönnum er kunnugt skilaði fjh.- og viðskn. samhljóða nál. s.l. mánudag og gaf upplýsingar um stöðu málsins eftir að hafa rætt við bankastjóra Seðlabankans og viðskiptabankanna. Þar kom fram að margt væri athugavert við frv. þetta og ekki væri það enn orðið sá alfullkomni skapnaður sem við hefðum helst kosið að svo mikilvægt frv. væri þegar það riði héðan úr garði frá okkur.
Síðan hefur nefndin fjallað frekar um málið og meiri hl. hefur ákveðið að afgreiða málið eins og það liggur fyrir með yfirlýsingu bankastjóra Seðlabankans um þá almennu fyrirætlan þeirra að lækka bindiskyldu, en við, sem skipum minni hl. nefndarinnar, teljum að gera þurfi fjölmargar breytingar á frv. og skilum séráliti.
Það er skemmst frá að segja að við í minni hl. nefndarinnar erum í grundvallaratriðum andvíg þeirri stefnu sem nú er fylgt í vaxta-, peninga- og bankamálum. Það blasir við flestum landsmönnum að þessi stefna, sem fylgt hefur verið, hefur haft í för með sér mjög stórfellt vaxtaokur enda eru raunvextir hér á landi einhverjir þeir hæstu sem þekkjast. Við látum í ljós ótta okkar um að þetta svonefnda vaxtafrelsi, sem hér veður hvarvetna uppi og hefur haft í för með sér ómældar afleiðingar fyrir þúsundir manna, geti stofnað í hættu þeim árangri sem ætlunin var að ná í kjölfar nýgerðra kjarasamninga.
Það er ekki síst staða ríkissjóðs sem hér ræður úrslitum. Hann er rekinn með stórfelldum halla og hallinn fjármagnaður með lántökum á almennum markaði sem spenna upp vexti í landinu. Skemmst er að minnast skýrslu frá Þjóðhagsstofnun sem gefin var út fyrir fáum dögum, en þar kemur einmitt fram og er staðfestur þessi ótti þeirra sem best þekkja til, að vondur rekstur ríkissjóðs kunni að valda því að verðbólga verði miklu meiri en vonir stóðu til eftir gerð seinustu kjarasamninga.
Ástæðan er sú, sem ég hef þegar nefnt, að ríkissjóður neyðist til að taka lán í stærri stíl en nokkru sinni fyrr á almennum markaði. Hann er ekki aðeins tilneyddur að standa í kapphlaupi við almenna markaðinn um sölu skuldabréfa, sem hann býður á ótrúlega háum vöxtum, svo háum vöxtum að hann verður að endurgreiða upphæðina eftir átta ár tvöfalda - 9% vextir þýða að upphæðin tvöfaldast á aðeins átta árum, skuldin verður orðin tvöfalt meiri að þeim tíma liðnum - heldur verður hann líka að taka lán í mjög stórum stíl í bankakerfinu, sennilega sem nemur upphæðum sem jafnast á við þá tölu sem á vantaði þegar dæmi nýgerðra kjarasamninga var gert upp. Þetta mun þá aftur ýta mjög undir almenna peningamarkaðinn og spenna upp vexti þar. Allt getur þetta sem sagt orðið til þess að ýta undir verðbólgu í landinu.
Við sem skipum minni hl. nefndarinnar, þ.e. auk mín fulltrúi Alþfl., Magnús H. Magnússon, og fulltrúi Kvennalistans, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, flytjum allmargar brtt. á þskj. 1064. Þetta eru 16 brtt. alls. En án þess að ég fari að lýsa hverri þeirra fyrir sig er skemmst frá að segja um aðalatriði þeirra að þar eru gerðar tillögur um að skerða vald Seðlabankans verulega frá frv. og þá einkum og sér í lagi með því að gera bankaeftirlitið sjálfstæðara og leggja það beint undir bankaráðið en ekki bankastjóra Seðlabankans og svo reyndar með því að draga úr heimildum bankans til að binda innlánsfé. Í því efni fylgjum við þeirri meginstefnu, sem hv. fjh.- og viðskn. hefur öll fylgt og deildin staðfest hér við atkvæðagreiðslu, þótt tillaga sú, sem við flytjum hér, sé að vísu til samræmis við þau sjónarmið sem minni hl. í hv. Nd. flutti og er því prósentutalan, sem miðað er við, heldur hærri en við höfðum staðið að að samþykkja ekki alls fyrir löngu hér í deildinni.
Önnur veigamesta breytingin í tillögum okkar er sú að við leggjum til að möguleikar Seðlabankans og ríkisstjórnar til að hafa hemil á óhæfilegum vaxtaákvörðunum innlánsstofnana verði eins og var í frv. þegar það var lagt fram. En það er skemmst frá að segja að í Nd. var dregið úr valdi Seðlabankans til afskipta af vaxtaákvörðunum.
Ef við lítum aðeins nánar á þetta atriði þá vek ég athygli á 2. málsgr. 9. gr. sem var víst 10. gr. áður en Nd. gerði breytingar á frv. Þar stóð að Seðlabankinn gæti að fengnu samþykki ráðherra bundið vaxtaákvarðanir innlánsstofnana takmörkunum, m.a. til að tryggja að raunvextir útlána innlánsstofnana verði eigi hærri en þeir eru að jafnaði í helstu viðskiptalöndum Íslands, svo og til að draga úr óhæfilegum vaxtamun milli inn- og úttána.
Nd. gerði orðalagsbreytingar á greininni sem við fyrstu sýn kynnu að virðast minni háttar. Aðalbreyting Nd. var að fella niður orðin „meðal annars“. En þessi orð, „meðal annars“, fela miklu meira í sér en manni kynni að virðast við fyrstu sýn því að eftir að þau hafa verið felld niður er ljóst að Seðlabankinn getur ekki haft afskipti af vaxtaákvörðunum innlánsstofnana nema í því eina tilviki sem nefnt er í greininni, þ.e. þegar rökstuddur grunur leikur á að raunvextir séu orðnir hærri en þeir eru að jafnaði í helstu viðskiptalöndum eða vaxtamunur milli inn- og útlána sé orðinn óhæfilega mikill. Meðan þessi orð, „meðal annars“, voru inni í greininni voru þetta aðeins dæmi um það hvenær Seðlabankinn gæti gripið inn í en dæmin fólu það í sér að bankinn gæti hugsanlega gripið inn í í mörgum öðrum tilvikum.
Við, sem skipum minni hl. nefndarinnar, leggjum til að greininni sé breytt í það horf sem hún var þegar frv. var lagt fram. Ég vil sérstaklega vekja athygli hv. nefndarmanna á þessari brtt. sem ég tel að sé í raun og veru mikilvægasta till. sem við flytjum þótt hún láti lítið yfir sér.
Í þriðja lagi bendi ég á að í till. okkar er gert ráð fyrir breyttum reglum um ráðningu seðlabankastjóra og öll undanþáguákvæði vegna núverandi bankastjóra eru felld niður.
Loks er rétt að benda á að till. okkar fela í sér að útþenslu bankans eru settar eðlilegar skorður og lögð er til sú regla að bankinn skili hagnaði sínum árlega í ríkissjóð. Að vísu er gert ráð fyrir því í frv. að bankinn skili helmingi af arði sínum miðað við þriggja ára uppgjör. En við gerum ráð fyrir því að hann skili öllum arði sínum og það sé gert upp árlega. Til viðbótar gerum við ráð fyrir því að ársreikningur sé miklu ítarlegri og greinarbetri en gert er ráð fyrir í frv. og þar sé ítarlega gerð grein fyrir hvers konar launagreiðslum og þá ekki síður hlunnindum, risnukostnaði, ferðakostnaði og öðrum greiðslum af því tagi.
Virðulegi forseti. Ég hef hér gert grein fyrir brtt. minni hl.