23.04.1986
Efri deild: 88. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4502 í B-deild Alþingistíðinda. (4261)
248. mál, póstlög
Magnús H. Magnússon:
Hæstv. forseti. Ég er alfarið á móti þeirri breytingu sem hv. Nd. gerði á frv. eins og það kom frá þessari hv. deild. Hvers vegna skyldu þeir sem fá laun sín greidd inn á reikninga hjá Póstgíróstofunni fá öðruvísi og verri fyrirgreiðslu en þeir sem leggja laun sín inn á reikninga hjá bankakerfinu? Í öllum nágrannalöndum okkar starfa póstgíróbankar innan póstþjónustunnar án þess að um verulegt bákn sé að ræða, a.m.k. ekki í neinni líkingu við sjálft bankakerfið. Nú koma bankastjórar fram á völlinn og berja sér á brjóst og vara við útþenslu bankakerfisins, einmitt nú þegar er verið er að leggja til aukna þjónustu án umtalsverðrar útþenslu.
Það eru alls staðar starfandi póstafgreiðslur þannig að sú heimild sem bætt var við lögin í þessari hv. deild kostar ekki mikla útþenslu. Þeir sem mest vara við útþenslu nú eru sömu mennirnir sem hafa hin síðari ár staðið fyrir útþenslu bankakerfisins langt úr hófi fram og langt út fyrir öll skynsemismörk. Frá því að póstgíróþjónustan var tekin upp og samstarfsnefnd hennar og bankanna var komið á laggirnar hafa bankarnir ævinlega reynt að draga til sín sem allra mest af hagræðinu við þessa þjónustu, en látið póstinn sitja uppi með sem allra mest af kvöðunum. Þannig vilja þeir að þetta verði áfram.
Hæstv. forseti. Ég er alfarið á móti þeirri breytingu sem Nd. gerði á þessu frv.