23.04.1986
Efri deild: 88. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4506 í B-deild Alþingistíðinda. (4269)

248. mál, póstlög

Samgrh. (Matthías Bjarnason):

Forseti. Ég gat þess, eins og raunar hefur komið fram í þessum umræðum, að ég mundi ekki leggja til að þessi breyting yrði gerð og ég mundi heldur ekki leggjast gegn því. Ed. gerði þessa samþykkt við 3. umr. Það var af og frá að nefndin í Nd. vildi ganga inn á það og m.a.s. þeir, sem skrifuðu undir nál. með fyrirvara, gerðu það sinn með hverjum hætti. Ég veit um að einn þeirra, sem skrifaði undir nál. þar með fyrirvara, vildi með öllu taka þetta út en hinir aftur voru sammála því sem gerðist hér í Ed.

Það sem um er ræða hér núna er það hvort frv. fer fram eða ekki. Ef breyting verður gerð frá því sem það kom frá Nd. þá þýðir það að frv. fer ekki fram. Það er búið að vinna mikið að þessari breytingu og það er verið að færa hér tæplega 50 ára löggjöf í nútímalegra horf. Hitt stendur mönnum opið að flytja frv. um breytingu á þessu á næsta þingi. Ég vil eindregið mælast til þess við hv. þingdeildarmenn að þeir, þrátt fyrir skoðanamun hvað þetta atriði varðar, afgreiði þetta frv. eins og það kom frá Nd. Það er opin leið að flytja málið aftur á komandi hausti.

Umr. (atkvgr.) frestað.