23.04.1986
Efri deild: 90. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4519 í B-deild Alþingistíðinda. (4293)

423. mál, áfengislög

Helgi Seljan:

Virðulegi forseti. Einhvern veginn hefur mér skilist að stefnt væri að þinglausnum í dag. En greinilegt er að það er fjarri forsetum að ætla sér það. Spurning er um það hvaða mál eigi hér fram að ganga. Ég hélt satt að segja að það væri eitt mál sem framar öðrum þyrfti að ná fram að ganga á þessari dagskrá, þ.e. Húsnæðisstofnun ríkisins, og um það væri fullt samkomulag. Síðan hélt ég að einnig hefði verið gert samkomulag um að svokallað Arnarflugsmál gengi hér í gegn. Þetta tekur vitanlega sinn tíma.

Við erum hér að vísa máli niður til Nd. sem ég hef enga trú á að verði frekari eining um þar en hér í þessari hv. deild. Svo virðist sem alls konar mál, sem greinilega er ekki samstaða um, eigi engu að síður með einhverjum hætti að keyra hér í gegn. Þá hefur a.m.k. ekki verið gert neitt samkomulag við mig um það, bæði varðandi umræður í einstökum málum, t.d. húsnæðismálunum, sem ég get gjarnan hugsað mér að flytja ítarlega ræðu um hér á eftir ef það er sérstök ósk forseta þingsins að þetta mál hér gangi fram og sé tekið fram yfir öll önnur mál.

Þá vildi ég leyfa mér í framhaldi af þessu, úr því að tíminn er svona yfrið nægur og ekkert liggur greinilega á og þau mál, sem menn kalla nauðsynjamál, sitja á hakanum og ekkert er með þau gert, sbr. Húsnæðisstofnun ríkisins sem ég hélt í einfeldni minni að væri mál sem ætti endilega að ná hér í gegn - (Forseti: Forseti telur ástæðu til að útskýra nokkru nánar ef hv. þm. hefur misskilið hvað hér er á döfinni. Það er að sjálfsögðu ekki nein ósk forseta, það eru ekki hans óskir sem ráða, heldur óskir þingsins almennt sem honum ber að fara eftir, að koma málum áfram eftir því sem samkomulag verður um og svo í annan stað að reyna að nýta tímann og fara eftir dagskránni eftir því sem tök eru á til að koma málum áfram. Þannig háttar til með Húsnæðisstofnunarfrv. að ekki er enn þá tilbúið nál. í því máli og sú er ein ástæðan fyrir því að það mál hefur ekki enn verið tekið til umræðu. Varðandi Arnarflugsmálið, þá er það ekki enn komið til þessarar hv. deildar. Þannig ber forseta, eins og ég veit að hv. 2. þm. Austurl. veit jafnvel og ég og jafnvel enn betur en núverandi forseti, að leggja sig fram um að koma málum áfram sem á dagskrá eru. En það eru ekki hans persónulegu óskir sem ráða í þeim efnum öðruvísi en að sinna sínum skyldustörfum.)

Ég þakka virðulegum forseta þessar skýringar. Ég á ekki við að það sé neitt óeðlilegt að baki því hvernig mál ganga hér til afgreiðslu og umræðu. Hitt vildi ég gjarnan vita áður en lengra er haldið, af því að þetta er mál hæstv. dómsmrh., hvort það er sérstök krafa hans og ósk að þetta mál nái endilega fram að ganga í því formi sem það nú er. Skal ég þá ekki hafa orð mín fleiri nú í þessari lotu fyrr en ég hef heyrt svör hæstv. ráðherra, sem þetta mál heyrir undir, um það hvort það sé hans krafa að þetta mál gangi skilyrðislaust til Nd. til þess þá auðvitað að fá þar afgreiðslu hversu langan tíma sem það kann að taka þar.

Svo spyr ég í lokin: Enn sefur selur á steini og á hann að sofa þar áfram eður ei? Það mál er þó á undan þessu dagskrármáli sem nú er búið að taka og væri fróðlegt að heyra skýringar virðulegs forseta á þeim svefni. (Forseti: Trúlega heldur selurinn vöku sinni því að ekki væri gott ef hann svæfi á steini til lengdar því að víða eru skotmenn í leyni.)