23.04.1986
Efri deild: 90. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4522 í B-deild Alþingistíðinda. (4296)
423. mál, áfengislög
Landbrh. (Jón Helgason):
Hæstv. forseti. Vegna fsp. hv. 2. þm. Austurl. vil ég ítreka það sem ég sagði hér við 2. umr. málsins. Með flutningi þessa frv. í upphafi óskaði ég eftir breytingum á þeirri tilhögun sem hefur verið um veitingu áfengisleyfa. Þegar það mál kom til nefndar hér var meiri hl. fyrir því í nefndinni og deildinni virtist vera að breyta því mjög mikið á þann veg sem ég gat alls ekki sætt mig við.
Hins vegar voru nú við 2. umr. málsins dregnar nokkuð til baka þær breytingar sem áður höfðu verið lagðar til á þann veg að ég taldi að ásættanlegt væri. Á þeirri forsendu greiddi ég atkvæði með frv. til 3. umr. og mun gera það einnig hér við lokaumræðu málsins.