23.04.1986
Efri deild: 90. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4526 í B-deild Alþingistíðinda. (4306)

332. mál, áfengislög

Árni Johnsen:

Virðulegi forseti. Í mínum málflutningi í þessu máli hef ég ávallt lagt ríka áherslu á að ég teldi eðlilegast að um þetta mál færi fram þjóðaratkvæðagreiðsla og ég var meðflm. slíkrar till. í hv. deild á síðasta þingi. Mér finnst þjóðaratkvæðagreiðslan vega þyngst í þessari till. Hún er skilyrði fyrir málinu og því segi ég já.