23.04.1986
Neðri deild: 96. fundur, 108. löggjafarþing.
Sjá dálk 4542 í B-deild Alþingistíðinda. (4325)
415. mál, skiptaverðmæti og greiðslumiðlun innan sjávarútvegsins
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Þau mál sem hér hafa komið til skoðunar gjalda þess hversu liðið er á þingið þannig að enginn tími gefst til þess að athuga þau þó þau væru svo sannarlega athugunarverð. Ég hallast að því að sú till. sem liggur hérna fyrir frá hv. þm. Halldóri Blöndal eigi fullan rétt á sér og þess vegna hlýt ég að segja já.